Goðasteinn - 01.06.1978, Page 27
vesturvegg innanverðan var hlaðinn grjótpallur, þar sem meisarnir
voru geymdir, troðnir af heyi. Gengið var úr hlöðu og heygarði
milli fjóss og tuddakofa og nokkrar hellutröppur niður á fjósstétt,
þegar meisarnir voru bornir til fjóss. Það var kallað að bera meis-
ana frammá. Og nú vorum við Helga að sækja ábætra upp í hlöðu,
því að Halla ætlaði að fara að gefa nýbærunum úr þeim fyrir
mjaltir. Helga var rétt á undan mér, en ég var að koma með 2 litla
ábætra sinn í hvorri hönd út úr hlöðudyrunum. Þá ríða ósköpin yfir
- voðalega harður jarðskjálftakippur. Ég datt kyllifiöt fram yfir
mig og þaut upp á tuddakofa, þegar ég komst á fætur. Kofinn titraði
enn. Þetta var grjóthlaðinn kofi með torfþekju. Helga datt fram
yfir sig á fjóströppurnar. Halla og pabbi komu í ósköpum út úr
fjósinu og duttu fram yfir sig á stéttina, hann með kartöfiukassa
í höndunum.
Hrossin höfðu verið að kroppa moð framan við lágan grjótgarð
neðan við fjóshauginn. Garðurinn hrundi og hrossin urðu skelfingu
lostin við skjálftann. Þau geistust í loftköstum niður Kirkjubrekku
og yfir lækinn, alla leið fram á Móa austur við Rangá.
Nú er að segja frá hinu fólkinu. Það var allt uppi á lofti í bað-
stofunni. Mamma var að prjóna á litla hringprjónavél, en á hana
voru aðallega prjónaðir sokkar. Prjónavélin var fest á borð við
suðurglugga í baðstofunni. Strákarnir voru að leika sér að hoppa
yfir langan lausan bekk (setubekk). Bekkurinn skall og svo strákarnir
á gólfið. Þuríður systir ætlaði að stökkva niður stigann og út göngin,
en Eiríkur kallaði höstugt til hennar að fara ekki þar út. Eirík grun-
aði, að í slíkum voðaskjálfta myndu grjótveggir skála og bæjardyra
hrynja, sem og varð. Hljóp svo fólkið allt í skelfingu út um norður-
gluggann, 8 manns með Engilbert tveggja ára. Fólkið sagði að það
hefði verið líkast því sem baðstofan sporðreistist frá norðri til
suðurs. Baðstofuklukkan, sem stóð í kassa á þilinu, skall fram á
gólf - að öðru leyti man ég ekki hvað fór úr skorðum innan bæjar
nema það, að norðurveggur skála og austurveggur bæjardyra hrundu.
Ég man eftir að veggirnir voru hlaðnir upp um vorið, einnig þurfti
að lagfæra bita og grind skálans, sem hafði skekkst. Kirkjan skekkt-
ist á grunninum og hallaði til suðurs og voru 2 smiðir fengnir tii að
rétta hana og lagfæra fleira sem fór úr skorðum við hana.
Þetta voru þeir Einar Jónsson bóndi á Eystra-Geldingalæk og
Goðasteinn
25