Goðasteinn - 01.06.1978, Síða 52

Goðasteinn - 01.06.1978, Síða 52
Sagan af Macbeth Charles Lamb samdi upp úr samnefndu leikriti eftir William Shakespeare. Jón R. Hjálmarsson þýddi. Á þeim tímum, þegar Duncan konungur hinn mildi ríkti yfir Skot- landi, var samtíða honum frægur aðalsmaður eða þan, svo sem þeir nefndust þar í landi, og hét hann Macbeth. Þessi Macbeth var nákominn ættingi konungs og í miklu áliti við hirðina sakir hreysti sinnar og hetjuskapar í styrjöldum. Hann hafði þá nýverið mjög aukið við hróður sinn með því að gjörsigra uppreisnarherflokk, er fengið hafði stuðning frá ótölulegum grúa norskra liðsmanna. Tveir víðfrægustu hershöfðingjar Skota, þeir Macbeth og Banquo, voru á heimleið að unnum frægum sigri og lá leið þeirra yfir heiði eina harla eyðilega. Þá voru þeir skyndilega stöðvaðir af þrem furðu- verum, er líktust konum, nema að þær höfðu skegg, og skorpnar ásjónur þeirra og tætingslegur klæðaburður gáfu til kynna að þær mundu vart vera af þessum heimi. Macbeth varð fyrri til að ávarpa verur þessar, en þá virtust þær fyrtast við og sérhver þeirra lagði skininn fingur á bleika vör til merkis um þögn. Hin fyrsta þeirra heilsaði Macbeth með nafnbótinni þan af Clamis, svo sem hann nefndist. Hershöfðinginn var ekki lítið undrandi yfir því, að þessar furðuverur skyldu þekkja hann. Og enn meira hissa varð hann, þegar önnur tók undir kveðju til hans og ávarpaði hann sem þan af Caw- dor, því að annar maður hafði þá nafnbót og Marbeth hafði ekki sóst eftir henni. Þá gekk sú þriðja fram og ávarpaði hann með þessum orðum: „Heill sé þér. Þú sem átt að verða konungur.“ Slík spádómsorð í kveðju þessarar veru komu honum mjög á óvart, þar sem hann viss.i vel, að meðan konungur og báðir synir hans væru á lífi, hefði hann enga von um að erfa kórónu landsins. Þá 50 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.