Goðasteinn - 01.06.1978, Page 55

Goðasteinn - 01.06.1978, Page 55
glæpi, sem venjulega þurfa að sigla í kjölfar taumlausrar metorða- girndar. Henni hafði tekist að fá hann til að fallast á morðið, en hún efaðist um staðfestu hans og óttaðist að meðfætt eðli hans, sem var bæði viðkvæmara og mannlegra en hennar, mundi gera uppreisn og hindra það verk, sem áformað var. Þess vegna var það, sem hún sjálf með rýting í hendi nálgaðist hvílu konungs. Áður hafði hún séð fyrir því, að herbergisþjónum hans væti veitt óhóflega rnikið vín, svo að þeir sváfu ofurölvi og gjörsamlega hirðulausir um þær skyldur sem á þeim hvíldu gagnvart konungi. Þarna lá Duncan konungur í værum svefni og naut góðrar hvíldar eftir ferðaþreytuna. Og þar sem hún leit hann au^um, þá sýndist henni hann svo líkur föður hennar að hún missti móðinn við ódæðis- verkið og hvarflaði frá og gekk út til að ráðfæra sig við mann sinn. Hann var þá orðinn mjög hikandi og á báðum áttum, hvað gera skyldi. Honum fannst nú, að það væri margt sem mælti gegn þessu ódæðisverki. 1 fyrsta lagi, þá væri hann ekki aðeins þcgn þessa konungs, heldur einnig nákominn ættingi hans. Þá hefði hann verið gestgjafi konungs þennan dag og því væri það skylda hans samkvæmt lögmáli gistivináttunnar að loka dyrum fyrir morðingj- um og síst af öllu mætti hann sjálfur hnífi bregða. Einnig hugleiddi hann, hversu réttlátur og miskunnsamur konungur Duncan hefði verið, hversu ljúfur og nærgætinn gagnvart þegnum sínum og þá alveg sérstaklega gagnvart honum sjálfum. Þá mætti líta svo á, að konungar sem hann, nytu sérstakrar náðar og umhyggju á himn- um, og á þegnum þeirra hvíldi margföld hefndarskylda, væru þeir myrtir. Þar að auki væri hann sjálfur, sakir hylli og virðingarauka af hálfu þessa konungs, í miklu áliti og metum hjá öllum þorra fólks í landinu. Hversu mjög mundi orðstír hans verða flekkaður, ef hann yrði nokkru sinni bendlaður við svo hryllilegt morð. 1 þessu uppnámi og hugarangri fann frú Macbeth mann sinn. Var hann nú mjög tekinn að hallast að hinum góða málstað og vildi gjarna hverfa frá þessu fyrirhugaða illvirki. En þar sem hún var ckki sú kona, að auðvelt væri að snúa henni frá illu ætlunarverki, byrjaði hún óðar að fylla eyru hans með frýjuorðum og blása illum anda sínum í brjóst honum. Hún taldi upp heila herdeild af rök- semdum gegn því að hann hörfaði frá því verki, er hann hafði tekist á hendur, og benti honum á, hversu auðvelt þetta væri og tæki Goðasteinn 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.