Goðasteinn - 01.06.1978, Side 62
sem töldust vinir hans, en hötuðu hann sem harðstjóra undir niðri
og hölluðust á sveif með Malcolm og Macduff. Macbeth geistist
fram og hjó í herðar niður alla, sem börðust gegn honum, þangað
til hann kom þar að, sem Macduff var í bardaganum. Er hann sá
hann, minntist hann aðvörunar andans, sem ráðlagði honum að
forðast Macduff umfram alla aðra. Hann mundi hafa snúið frá,
hefði ekki Macduff, er hafði leitað hans frá því að bardaginn hófst,
komið í veg fyrir það. Hófst nú harður bardagi þeirra og lét Mac-
duff falla mörg svívirðingarorð í hans garð fyrir morð á konu sinni
og börnum. Macbeth, sem þegar hafði flekkað hendur sínar nægi-
lega með blóði þessarar fjölskyldu, vildi gjarna hafa komist hjá
þessari viðureign, en Macduff skoraði á hann og nefndi hann öllum
illum nöfnum.
Þá minntist Macbeth orða andans um að enginn af konu fæddur
mundi vinna honum grand og mælti til Macduffs með bros á vör:
,,Þú erfiðar til einskis, Macduff, og eins getur þú sært loftið með
sverði þínu og mig. Líf mitt er með töfrum tryggt og verður ekki
frá mér tekið af neinum manni, sem af konu er fæddur.“ „Örvæntu
þá u.m þína töfra,“ sagði Macduff, ,,og láttu lygaanda þína, sem þú
þjónar, segja þér að Macduff hafi ekki af konu verið alinn á venju-
legan hátt, heldur tekinn með keisaraskurði fyrir tímann frá móður
sinni.“ „Bölvuð sé sú tunga, er talar svo,“ sagði Macbeth skjálfandi
röddu, því að nú fann hann síðasta haldreipið bresta. Aldrei skyldu
menn framar trúa tvíræðum spásögnum norna eða svikóttra anda,
sem blekkja okkur með orðum er hafa tvöfalda merkingu, og halda
loforð sín að sumu leyti, en bregðast vonum okkar með ttdhyggju
málsins. Ég vil ei við þig berjast.“
„Þá skaltu lífi halda,“ sagði Macduff með fyrirlitningu, og við
munum hafa á þér sýningu sem hverju öðru skrýmsli. Af þér mun
máluð mynd og skrifað undir: „Hér er til sýnis settur þjóðarböðull."
„Það skal aldrei verða,“ hrópaði Macbeth og með örvæntingu öðl-
aðist hann þrek á ný. „Ég vil ekki lifa til að kyssa jörðina fyrir
fótum unglingsins Malcolms og verða bölvandi skríl til skemmt-
unar. Þótt Birnamskógur komi til Dunsinanehæða, og þú sem berst
gegn mér hafir aldrei af konu alinn verið, þá skal ég gera, hvað ég
get.“
Með þessum æðisgengnu orðum réðst hann að Macduff, sem eftir
60
Goðasteinn