Goðasteinn - 01.06.1978, Síða 64
íngunn Jónsdóttir, Skálafelli:
Menn og örlög
Ég er fædd 20. mars 1882 á Smyrlabjörgum í Suðursveit. Foreldrar
minír voru Jón Jónsson og Sigríður Hálfdánardóttir. I hinum bænum
voru ábúendur Páll Benediktsson og Guðrún Hallsdóttir kona hans,
bæði frá Árnanesi. Bæirnir á Smyrlabjörgum stóðu hlið við hlið.
Páll og Guðrún eignuðust tvo syni, sem fæddust andvana en þau
ólu upp 4-5 fósturbörn. Ég ólst upp við húsdyr þeirra í 21 ár, þá
fluttist ég að Uppsölum og var nábúoi þeirra upp frá því til beggja
handa, fyrst á Uppsölum, síðar á Skálafelli. Það rekur mig til að
minnast þessara góðu hjóna, sem margir munu lítið kannast við,
að Torfi Þorsteinsson í Haga minntist á Guðrúnu Hallsdóttur í sam-
bandi við örlög Pálma Benediktssonar og fæðingu Kristins Pálma-
sonar og hrakning hans.
Torfi fer þar með rétt mál, eins og það gekk til, og get ég verið
honum þakklát fyrir, en Guðrún Hallsdóttir er þar ekki öll, henni
fórst vel við öll sín fósturbörn. Jóhönnu Einarsdóttur frá Árnanesi
tók hún á fyrsta ári. Gísla Jónsson bróðurson sinn tók hún 7 ára og
Einar Einarsson mánaðargamlan. Feður þeirra beggja drukknuðu
í Hálsós sama dag. Ingibjörg móðir Einars var hjá Páli og Guðrúnu
í 8 ár með Einar son sinn og var mannskapsmanneskja. Næst tóku
þau hjón Guðveig Þorláksson á öðru ári og ólu hann upp til 15 ára
aldurs að hann fór að Árnanesi. Þá var Guðrún orðin blind og Páll
dáinn. Öll fósturbörn Páls og Guðrúnar urðu góðir þjóðfélags-
þegnar og gott og vel gefið fólk frá þeim komið.
Páll og Guðrún bjuggu við góð efni og létu margt gott af sér
lciða. Þegar ábúendaskipti urðu á þessari jörð, mig minnir 1886, var
Skálafellssel í byggð, nýbýli út úr þessari jörð. Nýja bóndanum hér
þótti stakkur sinn þröngur og útbyggir Guðmundi Jónssyni úr Skála-
fellsseli, svo það fellur aftur á sinn stað, í þessa eystri jörð Skála-
fells, sem var kirkjueign. Syðra býlið var bændaeign. Nú er Guð-
62
Goðasteinn