Goðasteinn - 01.06.1978, Qupperneq 65
mundur Jónsson jarðnæðislaus. Kona hans, Snjólaug, var systir
Eymundar Jónssonar í Dilksnesi. Guðmundur flúði á náðir Páls á
Smyrlabjörgum. Leyfði Páll honum að taka sér nýbýli syðst í túni
sínu, næst fjalli. Þar byggði Guðmundur sér bæ og nefndi Ekru.
Ekki gat Páll látið Guðmundi land í té nema bithaga, en Bjarni
Gíslason bóndi á Uppsölum leyfði Guðmundi að slá í Svínafells-
mýri í fjalllendi. Þarna bjuggu Guðmundur og Snjólaug þar til Skála-
fell losnaði úr ábúð og Páll Benediktsson byggði þeim það. Guð-
mundur og Snjólaug bjuggu þar síðan það sem eftir var af þeirra
búskapartíð, ólu þar upp fimm syni og eina dóttur og er frá þeim
komið víðfrægt fólk að mannkostum og miklum hæfileikum utan
lands og innan.
Næst kemur til Páls Benediktssonar Einar Sigurðsson bóndi frá
Lambleiksstöðum á Mýrum mcð konu sína Llólmfríði Bjarnadóttur
og fimm börn sín, en Hólmfríður gekk þá með það sjötta. Bað
hann Pál ásjár ef mögulegt væri. Einar gat ekki fengið neitt skjól
á Mýrum, hefur kannski orðið að standa upp fyrir e.iganda Lamb-
leiksstaða, mér er það ekki vel kunnugt. Páll leyfði Einari að taka
nýbýli upp undir Sjónabergsbrekku. Merkurmenn gengu strax í að
koma upp baðstofu þar og geymslukofa. Mig minnir þetta vera 1886.
E.inar er þarna með sömu kjörum og Guðmundur Jónsson. Næsta
ár flytja þau Guðmundur og Snjólaug að Skálafelli. Þá kemur til
Páls Benediktssonar Einar Gíslason vinnumaður frá Sævarhólum
með konu og tvö börn og bað Pál að byggja sér Ekru, bústað Einars,
var ekki nema stutt, því hann drukknaði í Hálsós eftir mánaðarveru
á Ekru.
Einar Sigurðsson bjó á Smyrlabjörgum 3 ár á nýbýli sínu, er hann
nefndi Einarsbrekku og fylgir nafnið enn staðnum. Séra Sveinn
Eiríksson á Kálfafellsstað bauð Einari þá Einbúa, sem stóð sunnan
megin við Staðará og losnaði þá úr ábúð. Einar fór þangað með
konu sína og 6 börn og á Einbúa fæddust þeim hjónum tveir drengir,
Sveinn og Lúðvík. Einar var á Einbúa að mig minnir í 4 ár. Þá er
það að Haukafell á Mýrum losnar úr ábúð. Sótti Einar um það og
fékk til ábúðar og var nú glaður að komast aftur í sveit sína og til
skyldmenna sinna. Vel man ég eftir þeim Einari og Hólmfríði með
barnahópinn sinn. Stönsuðu þau kaffitíma hjá foreldrum mínum á
leiðinni austur. Einar og móðir mín voru systkinabörn.
Godaste'um
63