Goðasteinn - 01.06.1978, Síða 66
Einar var ekki búinn að vera lengi að Haukafelli, þegar skór-
inn fór að kreppa að honum. Þá er það að hann fer á Papós að sækja
sér jólaglaðning. Þegar hann komst á tal við kaupmann, þá vill
hann ekki láta Einar fá neina úttekt nema hreppsnefnd hans gengi
í ábyrgð. Einar hafði þungt hús fram að færa, en börn hans voru
efnileg og þroskaleg. Hann leitaði til hreppsnefndarinnar en fékk
daufar undirtektir. Vísaði hreppsnefndin honum til Suðursveitar,
sem ekki vildi kannast við Einar sem sinn mann. Lenti þetta svo
í málarekstri milli sveitanna, ekki af neinni óvild, en þetta var
gömul togstreita hér á landi að forðast sveitarþyngslin. Málið lenti
á Mýramönnum.
Ekki man ég hvað Einar var lengi á Haukafelli eftir þetta en
ckki voru það mörg ár. Tók hann sig upp með fjölskylduna og flutti
ti Mjóafjarðar. Stefanía systir Einars var komin þangað áður og
mun hafa hvatt hann til að koma. Frá Mjóafirði flutti Einar og
öll fjölskylda hans til Patreksfjarðar. Fékk hann þar jörð til ábúðar,
sem Kambur heitir. Gengu synir Einars undir nafninu Kambs-
bræður. Börnin þroskuðust og urðu mesta manndómsfólk.
Guðmundur í Hoffelli sagði mér að hann hefði mætt Einari
Sigurðssyni og Helga syni hans á götu í Reykjavík og voru klæddir
eins og greifar. Þeir voru þá að koma af Patreksfirði að kveðja
Guðfinn Einarsson, sem var að fara alfarinn til Vcsturheims. Ég
las einu sinni eftirmæli um Margréti dóttur Einars eftir prest hennar
og var vel um hana talað. Líka las ég eftirmæli um tengdadóttur
Einars, konu Sveins Einarssonar. Þar var öll fjölskyldan nefnd með
góðum vitnisburði. Einar Bragi kom hér fyrir tveim árum. Barst
í tal milli okkar um börn Einars og Hólmfríðar. Hann sagðist hafa
kynnst, ég held syni Margrétar frekar en sonarsyni, ég man það ekki
glöggt, úti í Svíþjóð, líklega við nám og gerði mikið úr þeim niðja
E.inars Sigurðssonar.
Vel man ég eftir Einari á Einarsbrekku. Hann var fríður maður
og vel á sig kominn, snilldarmaður í allri umgengni, lagvirkur og
allt smekklegt sem hann bar hönd að. Hann var að gefa okkur
systkinunum leikföng, tréhesta, sem hann skar út, með hnakk og
beisl.i. Hólmfríður var mesta þrifakona og dugleg. Hún var ættuð
úr Vestur-Skaftafellssýslu. Margrét dóttir Einars giftist Guðmundi
Hallssyni bróður Magnúsar Hallssonar í Holtum.
64
Goðasteinn