Goðasteinn - 01.06.1978, Qupperneq 77
fara að ná mér í vatn til að hita mér kaffi. Síðan þaut ég ofan í
Kamb, en neðarlega í honum var besta veiðiplássið mitt í mörg
ár. Vc.iðin gekk svo vel að ég hafði á þriðja hundrað í ailt.
Þegar komið var hádegi, leit ég við og sá að Steindór stóð á
Stóradalssiginu. Fór ég þá strax upp og við hituðum okkur kaffi.
Steindór fór svo ofan í Höfðanefið og veiddi þar þó nokkuð, víst
cina 50 fugla. Þessi veiðiferð varð því fengsæl. í heimflutningi voru
hafðir um 10 fuglar í hnút og 70-80 fuglar voru bundnir upp á
hest öðrum megin og annað eins á móti, upp í hnakkinn. Var svo
setið þar ofan á.
Við Sigurður Arason vorum lengi saman við veiðiskap í Höfð-
anum. Á seinni árum mínum í Öræfunum voru komnir drengir bæði
frá Hof.i og Hnappavöllum í það að vera veiðimenn í Höfðanum.
Eftir að ég kom að Skaftafelli fór ég einstaka sinnum í Höfðann
og hafði þá með lausan hest undir fuglinn.
Fuglinn var etinn bæði nýr og saltaður. Honum var aðeins brugð
ið á eld, þegar búið var að reyta hann, og síðan skafinn. Hann
þótti einn sá besti matur, sem völ var á. Lundalúsin var sumum
leið. Það var svo einkennilegt með hana að hún var alveg vitlaus
í þá, sem komu nýir í veiðiskap, en við Sigurður Arason vissum
ekki af henni og höfðum þó fuglinn við hliðina á okkur.
Það var fuglinn sem bjargaði okkur. Það var ósköp mikil fátækt.
Ég get sagt þér það, þegar síðasti maðurinn hennar mömmu minnar
dó, árið 1900, þegar ég var nítján ára, þá voru 27 ær hjá okkur, 12
sauðkindur, 14 eða 15 gemlingar, 3 kýr og 3 hross. Margir voru fá-
tækir á þeim árum, sumir bjargálna eða vel það, varla nokkur, sem
taldist ríkur.
Þœttir Sveins Bjarnasonar eru eftir segulbandsupptöku frá 1911.
Sveinn var þá 96 ára, fœddur 11. mars 1881. Goðasteini er það
fremd að tefla fram í þessu hefti tveimur elstu Austur-Skaftfelling-
unum, þeim Ingunni á Skálafelli og Sveini Bjarnasyni í fróðleiks-
þáttum þeirra um liðinn tíma og raunar einstakt dœmi, þótt litið
sé til landsbyggðarinnar allrar. Hreppstjórinn á Mýrinni, sem Sveinn
Bjarnason rceðir um í frásögn sinni, er Ari Hálfdánarson á Fagur-
hólsmýri.
Goðasteinn
75