Goðasteinn - 01.06.1978, Page 116
Og stansaðu aldrei, þótt stefnan sé vönd
og stórmenni hcimskan þig segi.
Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd,
þá ertu á framtíðarvegi.
Og það er vegna þessa viðhorfs Þorsteins Erlingssonar sem það
er sérstaklega gleðilegt að minnisvarði hans skuli risinn hér hjá
menntasetrinu í Skógum. Hann sem skáld sannleika og manndóms,
æsku og fegurðar á sannarlega heima í nálægð hinna ungu. Megi
þetta lofsverða framtak verða til þess að æskufólk þessa skóla
kynni sér vel ljóð hans og boðskap. Slík kynni munu engan svíkja,
heldur auðga og fegra anda þeirra, er njóta kunna. Þar kveður
við rödd hreinleika og sannleika öllu öðru fremur. f kvæðinu Bókin
mín segir hann í niðurlagi:
Mig langar að sá enga lygi þar finna,
er lokar að síðustu bókinni minni.
Og í Brautinni, einu mesta ljóða hans, segir einnig:
Ég trúi því sannleiki
að sigurinn þinn
að síðustu vegina jafni.
Og þér vinn ég, konungur, það sem ég vinn
og því stíg ég hiklaus og vonglaður inn
í frelsandi framtíðar nafni.
Megi hugsjónir Þorsteins Erlingssonar um réttlæti, frelsi, fegurð
og sannleika verða leiðarljós allra, sem hér eru á ferð og þá einkum
þeirra, er við stofnun þessa starfa og nema. Sem þjónustumaður
skólans hér í Skógum um langt árabil fagna ég því einlæglega að
minnisvarði Þorsteins skálds Erlingssonar skuli hér risinn og tel
það gleðilegan menningarviðburð í sögu Skógamanna, Eyfellinga,
Rangæinga, Skaftfellinga og raunar þjóðarinnar allrar. Hafi þeir
heiia þökk, sem að framkvæmd þessari stóðu, og þá einkum og sér
í lagi Erlingur læknir, sonur skáldsins. Megi heill fylgja góðu verki
og megi fegurðin, ylurinn og birtan í ljóðum Þorsteins Erlingssonar
fylgja þjóð okkar fram um veg.
114
Goðasteinn