Úrval - 01.11.1977, Page 26
24
ÚRVAL
Þótt 400
snilligáfa
ár séu liðin frá fæðingu hans, heldur
hans áfram að auðga heiminn.
RUBENS: AUGA FYRIR
KVENLEGRI
FEGURÐ
— George Kent —
rjár fallegar stúlkur sátu
við glugga á götuhæð og
voru að spinna, þegar
hávaxinn, rauðhærður og
myndarlegur maður með
fjaðra prýddan hatt nam staðar fyrir
utan gluggann og starði inn.
Augnaráð hans var kalt og ákveðið;
það var eins og hann væri að skoða
fiðrildi. Svo gekk hann inn í húsið án
vt\ A\ A\
I '
*
*
*
*
*
*****
þess að kveðja dyra og sagði ofur
eðlilega: ,,Viljið þið gera svo vel að
fara úr fötunum, takk.”
Ein stúlkan rak upp óp, en önnur,
veraldarvanari, hafði betri stjórn á
sér. „Þessi herramaður sýnist ekki af
því tagi,” sagði hún.
,,Ég er það heldur ekki,” svaraði
hann. ,,Ég er listamaður. Ef líkamir
ykkar eru eins og ég held að þeir séu,