Úrval - 01.11.1977, Blaðsíða 10
8
að þau hafa átt átjánda afmælið hafi
ég klippt á alla föðurtilflnningu
gagnvart þeim. Þessi tilfinning hefur
staðið lengi — jafnvel orðið að vana.
18 ára gamall vani gerir mann háðan
sér, og eins og ævinlega þegar maður
hefur orðið einhverju háður, er erfitt
að varpa því frá sér. Það er
ógerningur að drepa í einu vetfangi
tilfinningar sínar til barnanna, ekki
aðeins væntumþykju, heldur líka
umhyggju og ábyrgðartilfinningu í
garð barnanna „minna”. Nema
þegar þau eru farin að heiman eru
þau ekki lengur ,,mín”.
Og þegar öllu er á botninn hvolft,
vilja þessi fullorðnu börn heldur ekki
höggva af skyndingu á allt okkar
samband. Þau vilja ennþá halda í allt
það þægilega, sem því fylgir: Þau
vilja að pabbi og mamma sjái þeim
fyrir heimili og mat og þau vilja og
ætlast til að við hlaupum undir bagga
með kostnaðinn af framhaldsnámi
þeirra.
Það sem þau vilja ekki er sérhver sá
þáttur samskipta foreldra og barna
sem þeim finnst óskemmtilegur. Þau
vilja ekki að við Joan spyrjum þau
hvort, hvað og hve mikið þau drekki,
hvort þau noti hass eða önnur
eiturlyf, hvers konar kynlífi þau lifi ef
það er eitthvert. Þau telja það ekki
koma okkur við. Þegar þau eru 17
ára, jú; en 18 ára ekki.
Þau taka það líka óstinnt upp ef
annað hvort okkar flnnur að því við
þau að þau skuli ekki leggja harðar að
sér að fá vinnu, eða að þau skuli
URVAL
koma svona seint heim, — ef þau
koma þá nokkuð heim — eða að þau
skuli halda hóp við aðra 18, 19 og 20
ára unglinga sem hafa, að okkar
foreldralega þröngsýnisdómi, slæmt
orð á sér. Þau vilja halda áfram að
nota heimili okkar (mitt og Joans)
fyrir sitt heimili, en aðeins sem
gjaldfríir kostgangarar. Satt er það að
vísu, að þau krefjast þess ekki að við
sjáum þeim fyrir herbergisþjónustu
og matsveini. En ef við gerðum það,
myndu þau taka þvl sem sjálfsögðum
hlut.
Eftir 18 ára vilja fullorðin börn
hafa sínar eigin lífsvenjur. Þau vilja
hlusta á Sja na na með tækin svo hátt
stillt að veggirnir nötri, ég vil hlusta á
Benny Goodman svo lágt stillt að ég
heyri til hans og geti talað við Joan
um leið, ef okkur langar að spjalla
saman. Þau vilja sofa til hádegis og
byrja daginn með gosi og sætabrauði.
Ég verð að fara á fætur klukkan hálf