Úrval - 01.11.1977, Blaðsíða 125
NOI, FLOÐIÐ OG VÍSINDIN
123
11.600 árum. Það er enginn vafi að
það var flóð og heldur enginn vafi að
það var alheimsflóð. ”
Jarðfræðingarnir Kennert og
Shackleton staðfesta niðurstöður
Emilianis, en þeir komust að þeirri
niðurstöðu að „geysimikið jökul-
leysingavatn hafi streymt út í
Mexxkóflóa um vatnakerfi Mississippi
árinnar. Þegar þetta streymi var mest,
minnkaði saltmagn sjávarins um tíu
prósent eða þar um bil miðað við
vatnsskorpuna.”
Vitaskuld var ekki ferska vatnið
sem flæddi út í Mexíkóflóa eina
vatnsuppsprettan, sem olli flóðinu.
,,Það hlýtur að hafa orðið leysing á
suðurskautslandinu líka,” segir
Emiliani. ,,Það vill svo til, að
ýmislegt bendir til að íshellan á
vestur hluta Suðurskautslandsins sé
ekki mjög stöðug. Það hefur gerst
áður, og það getur gerst aftur. En
hvað sem það snertir, rannsóknir
okkar á Mexíkóflóa gefa okkur
hugmynd um hvað gerist þegar
íshetta eyðist snögglega, hve hratt
það gerist og hve hátt má búast við að
sjórinn rísi.” Áætlun hans er um 30
sentimetrar á ári, en það er nóg til
þess að hafa mikil áhrif á flatlendinu
við Persaflóa.
BIBLÍAN GEFUR ENGA ríma-
setningu á flóðinu. Hún segir aðeins
að það hafi orðið. Nú verða skeljar af
örsmáum verum sem dauðar eru fyrir
árþúsundum, ásamt sumu af elstu
rituðum heimildum mannsins, fleyg-
aðar í bakaðan leir, til þess að færa
okkur sannfærandi sönnun þess, að
einu sinni hafi í alvöru komið mikið
flóð sem náði um alla heimsbyggð-
ina.
★
Preston,var skólanefndarmaður og afar passasamur á aurana. Hann
byrjaði sjálfur sín viðskipti án þess að eiga krónu og fannst að allir gætu
gert eins. Hann umhverfðist þegar kennararnir kvörtuðu yflr lágum
launum sínum. Hann var sérstaklega reiður þegar félagsráðgjaflnn
tilkynnti að hann ætlaði að snúa sér að iðnaðinum, þar fengi hann
helmingi hærri laun.
,,Ungi maður,” sagði hann kuldalega, ,,það eru til hlutir sem ekki
er hægt að kaupa með peningum. Geturðu ímyndað þér nokkuð
verðmætara en að geta horfst í augu við samborgara þinn og sagt: ,,Ég
hef reynst verður þess trausts er þið sýnduð mér?”
,Já,” svaraði kennarinn. ,,Að geta sagt það sama við lánadrottna
mína.”
J.D.