Úrval - 01.11.1977, Page 39
37
í Prúðuleikþáttunum er Kermit
gestgjafinn, hann fær í heimsókn
stjörnur gæddar holdi og blóði, svo
sem Edgar Bergen, Bernadette
Peters, Twiggy og Elton John svo
nokkrir séu nefndir. Þetta eru
söngstjörnur og dansstjörnur, með
margvíslegan sviðsbúnað. I fyrsta
sinn síðan tvær tuskubrúður sem
hétu Carlie McCarthy og Mortimer
Snerd gerðu Edgar föður Candice
Bergen að stjörnu, leiksviðs, sjón-
varps og útvarps, eru leikbrúðurnar
að keppa við lifandi leikara um hylli
áhorfenda — einkum hinna full-
orðnu. Þegarþáttur Prúðuleikaranna
var fyrir skömmu fluttur á tíma fyrir
börn í sjónvarpinu breska, mótmælti
svo stór hópur fullorðinna að
sýningin var flutt á annan tíma.
Hvað eru prúðuleikarar? Henson
lagði þeim orð í munn til að lýsa
sinni eigin blöndu af strengbrúðu og
venjulegri handbrúðu. Höfuð margra
Prúðuleikaranna eru lítið meira en
handbrúður, en höndum þeirra og
öðrum hlutum líkama þeirra getur
verið stjórnað með strengjum og
teinum og öðrum stjórntækjum eins
og strengbrúðum.
Hver sem hefur fylgst með
handbrúðu eða strengbrúðu um
stund veit að án persónuleika verður
hún ekki líflöng. Því ef henni er ekki
trúað, man enginn eftir henni.
Henson og aðstoðarmenn hans hafa
fram að þessu skapað 400 Prúðuleik-
ara sem eru mismunandi skopstæl-
ingar á persónuleika ýmissa einstakl-