Úrval - 01.11.1977, Page 115

Úrval - 01.11.1977, Page 115
ÁRLANGUR DAGUR 113 hver á annan munaði minnstu að hitamælirinn kæmist yfír frostmark- ið. Ivar hafði meiri mætur á þessum árstíma en nokkrum öðrum. Dag einn ákvað hann að fá sér nýja rjúpu í matinn og lagði af stað á skíðum. Hann stefndi upp í Rjúpna- hæð fyrir ofan Aðalkofann. Rjúpan hlaut að vera komin fram núna, farin að klóra í snjóinn í leit að fræjum frá árinu áður, áður en hávaðasamir sjófuglarnir kæmu aftur. Þegar hann var kominn langleiðina Upp eftir hæðinni vafði hann sér sígarettu og virti fyrir sér landið fyrir neðan. Fjörðurinn var enn hulinn silfri íssins nema um miðjuna, þar sem sjávarföllin höfðu myndað í hann smálænur og hellt eyðandi salti upp á snjóinn. Þessir grönnu, blásvörtu fíngur vom forboðar þess að ísinn leysti. Klukkustundu seinna var Ivar næstum kominn niður af hæðinni þegar vindurinn bar til hans æst gelt sleðahundanna. Svona urgur í þeim gat ekkert þýtt annað en að bjarndýr væri rétt hjá þeim. En þegar hann kom til hundanna var ekkert bjarndýr að sjá, aðeins slóðin var eftir. Það gat þó ekki verið langt undan og sporin voru svo stór að hjarta hans tók að slá örar. Slóðin lá fram á fíörð. Ivar skoðaði ísinn í kíkinum þar til hann sá hvar hvítabjörninn fór og stefndi þangað sem ísinn hafði raðast í hrannir frammi á fírði. Þetta var of seint á veiðitímanum til að láta forláta karldýr fram hjá sér fara. Færið var mjög langt, meira að segja fyrir hlaupalangan Mauserriffílinn. En hann komst ekki í betra færi. Hann kraup niður, lagði riffílinn á stein, miðaði og hleypti af. Honum sýndist björninn hrasa, en svo tók hann á rás, ósár að sjá. Annað og þriðja skotið þeyttu bara upp ísgusum fyrir aftan dýrið og hertu enn á því. Ivar hélt að hann hefði engu hitt þar til hann sá rauða slóð á ísnum gegnum kíkinn. Dýrið var sært. Hann slengdi rifflinum á öxl sér og renndi sér af stað í eftirför. Hann bar fljótt út á fíörðinn. Hann minntist þess hvernig mið- fíörðurinn hafði litið út ofan af hæðinni: Svartir sprungufíngur og sjópollar ofan á hættulegum ís. En honum þótti ísinn traustur undir skíðum og særður björninn gat ekki flúið langt. Eftir klukkustund var blóðslóðin orðin að dreifðum dropum en Ivari sýndist vera orðið styttra á milli-skrefa hjá dýrinu. Beint fram undan var sprunga þar sem sjávarföllin höfðu hrannað ísnum upp. Ivar fór á skíðum eins nærri og hann þorði, steig síðan af þeim og stakk þeim upp á endann í snjóskafl. Svo klifraði hann gætilega upp á hrönnina og litaðist um. Um fjögur hundruð metra fram undan var bjamdýrið á sléttri íshellu. Hann fíkraði sig niður af hrönn- inni hinum megin og skokkaði meðfram bjarnarslóðinni. Hann fór
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.