Úrval - 01.01.1979, Qupperneq 4
2
ÚRVAL
^Skgp
Rússnesk kona hafði símasamband
við Brésnef í Kreml og minnti hann á
með þokkafullri röddu að þau hefðu
sofið saman fyrir nokkrum árum.
Hún taldi ástæðulaust að þetta yrði
blaðamatur vestrænna fréttamanna,
en hún vildi fá stærri íbúð og vantaði
bíl. Brésnef lét það eftir henni
hringingarnar héldu áfram mánuð
eftir mánuð. Brésnef, sem gat alls
ekki munað eftir þessu ævintýri, bað
nú konuna um að segja sér hvar og
hvenær atburðurinn hefði átt
sér „Leonid’.” kallaði hún upp.
„Hvernig gastu gleymt því? Ég er
Olga, og við sofnuðum saman á 23.
deildarfundinum undir ræðu
Suslovs.”
Annar brandari, sem gengur í
Rússlandi þessa dagana, segir frá því
að Brésnef hafi heimsótt Pentagon,
húsakynni bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins í Washington. Þar var
honum vísað inn í herbergi, þar sem
ekkert var inni annað en borð og tveir
símar, annar blár, hinn rauður.
Honum var sagt að þetta væru beinar
línur til himna og helvítis.
Brésnef lyfti rauða tólinu, og rödd
sagði: ,,Halló, þetta er Skrattinn.”
Brésnef var í sjöunda himni, þegar
hann snéri aftur út úr herberginu. En
honum brá í brún, þegar varð-
maðurinn við dyrnar sagði: „Símtalið
gerir 100 dollara, herra minn.”
Þegar Brésnef kom heim aftur,
heimtaði hann samskonar útbúnað í
Moskvu. ,,Við höfum hann nú
þegar,” svaraði varnarmálaráð-
herrann og sýndi honum nákvæmlega
eins herbergi, með bláum og rauðum
síma. Brésnef lyfti rauða tólinu og
heyrði: ,,Halló, þetta er Skrattinn.”
Þetta líkaði Brésnef vel, en þegar
hann var að fara út, stöðvaði ungur
varðmaður hann og sagði: ,,Þetta
gerir 20 kópeka.”
,,Bara 20 kópeka.” hrópaði Brésnef
hneykslaður. ,,En þetta ksotar 100
dollara í Washington.”
,Já,” svaraði varðmaðurinn. ,,En
þar er það langlínusimtal.”
BBC Radio 4
Pétur er ekkert óhress yfir að missa
þessar tvær framtennur.
Nú getur hann flautað í stereo.
Ekki setja hnífinn upp í þigjens.
Ég verð. Gaffalinn lekur.