Úrval - 01.01.1979, Page 13
11
ÞAD SEM KÖNNUNIN LEIDDI íLJÓS
50 ára, eða fólk á besta aldri. Raunar
má bæta við aldursbilinu 10-20 ára,
eða unlingsárunum, og kemur þá í
ljós að rúmlega 70% lesenda em á
bilinu 10-50 ára.
Lesendur Úrvals em fólk með ýmiss
konar menntun að baki.
Fjölmennastir em þeir, sem hafa látið
skyldunámið duga, eða 52%. Iðn-
skólamenntaðir og menntaskóla-
menntaðir em með 8,7% hvor
hópur. Háskólamenntun og búfræði-
menntun em með 7,2% hver hópur.
Kennaramenntaðir eru 5,8% . Önnur
menntunarform hafa lægra hlutfall,
svo sem verslunarmenntun, vélskóla-
menntun, tæknifræði og fleira.
Lesendur Úrvals koma úr æði
fjölbreyttum starfsgreinum.
Fjölmennasta stéttin er húsmæður,
en þær sem gefa þá starfsgrein upp
sem aðalstarf eru þó ekki nema rétt
um fimmtungur, eða 20,3%.
Bændur em 14,5%, iðnaðamenn af
ólíkasta tagi 10,1%. Verkamenn em
7,2% og skrifstofufólk 4,4%. Aðrar
starfsgreinar hafa lægra hlutfall, en
til gamans skulum við rekja þær
starfsgreinar aðrar, sem komust á
blað. (Rétt er að geta þess, að
iðnaðarmenn eru taldir hér undir
einu heiti, þótt iðngreinarnar séu
mjög fjölbreyttar.): Lyfjafræðingar,
kennarar, umboðsmenn, forstjórar,
hjúkmnarnemar, hjúkmnarfræðing-
ar, kokkar, sjómenn, verkstjórar,
fóstmr, skólanemar, bankastarfs-
menn, tækniteiknarar, viðskipta-
fræðingar, blaðamenn — og ein
greinargóð kona gaf starf sitt upp
með þessum orðum: Prjón og dútl.
Búseta fólks skiptist á þennan hátt:
Vesturland: 17,4%
Norðurland: 26,1%
Austurland: 17,4%
Suðurland: 36,2%
2,9% treystu sér ekki til að gefa
upp búsetu í ákveðnum landshluta.
í þéttbýli búa 53,6% lesenda, í
dreifbýli 42,1%. 4,3% gátu ekki gert
það upp við sig, hvort þeir búa í
þéttbýli eða dreifbýli.
Nákvæmlega þrír fjórðu hlutar
þeirra, sem þátt tóku í könnuninni,
em áskrifendur. Fimmti hluti
þátttakenda hefur keypt Úrval frá
upphafí. 56,5% lesenda sögðu, að
eintak þeirra af Úrvali læsu að
jafnaði 2-4, en 38% töldu að 5-10
manns læsu þeirra eintök. Ef marka
má þessar niðurstöður, sýnir það að
Úrval kemur fyrir augu býsna margra.
Þá er komið að vinsældum efnis í
blaðinu, og hirðum við nú ekki um
brot af prósentum, heldur hækkum
upp eða lækkum niður í heila tölu,
eins og gert er nú með aurana í
fjármálaviðskiptum,
Fræðandi greinar: 96%.
Greinar í léttum dúr: 94%.
Greinar um mannraunir: 94%.
Bókina: 84 %.
Úrvalsljóð: 51%
Smáklausur og skop: 90% .