Úrval - 01.01.1979, Side 16
14
ÚRVAL
margir — þótt við höfum raunar ekki
talið þá — spurðu eftir möppum til
að geyma ritið í. Þessar möppur
fengust á dreifingu blaðsins fyrir
röskum áratug, að ég ætla, en seldust
þá tiltölulega dræmt og voru fyrir-
ferðarmikil vara að liggja með. Þó er
sjálfsagt að athuga möguleika á að
koma þar til móts við kaupendur
ritsins, ef fært þykir, Hvernig myndi
ykkur lítast á pappamöppur, sem
hægt væri að leggja saman þegar þær
eru ekki í notkun?
Einn var sá fasti þáttur, sem ekki
var spurt um í könnuninni, en
yfirgnæfandi meirihluti minntist á og
allir á einn veg, eða til hróss. Það var
þátturinn Úr heimi læknavísindanna.
Sá þáttur virðist njóta gífurlegra
vinsælda, og sýnir það, að ein
breytingin á blaðinu á síðari ámm, að
minnsta kosti, hefur verið til bóta.
Ennfremur gerðu nokkrir fyrir-
spurn um, hvort unnt væri að hafa
yfirlit yfir efni fyrirfarandi árs í fyrsta
blaði á ári hverju. Þessi fyrirspurn
hefur áður skotið upp kollinum í
bréfum til Úrvals. Hér er úr nokkuð
vöndu að ráða. Hvernig á það efnis-
yfírlit að vera? Hvernig á að raða
efninu niður? Eftir stafrófsröð —
fyrsta staf í hverri fyrirsögn? Eftir
efnisflokkum? Hvernig á að flokka
efnið? I mjög mörgum tilvikum er
erfitt að skera úr um, hvort ákveðin
grein eigi að falla undir þennan flokk
eða hinn, og úrskurður ritstjórnar þar
um getur gengið þvert á túlkun
lesanda, þannig að síðar meir finni
hann alls ekki þá grein sem hann
leitar að undir þeim flokki, sem hann
telur hana hafa átt heima í. Um þetta
væri gagnlegt að fá tillögur, því ef
hægt er að komast á skynsamlegan
grundvöll með þetta atriði, er í sjálfu
sér ekki erfítt að verða við þessum
óskum. Og hve margir eru það í
rauninni, sem óska eftir efnisyfirliti
— og hve margir myndu aðeins telja
það sóun á dýrmætu lesmálsrúmi?
Hér hefur verið farið nokkrum
orðum um niðurstöður skoðana-
könnunar Úrvals frá liðnum vetri.
Vafalaust hefur lesendum þótt
fróðlegt að fræðast um þær, því þótt
ekki sé enn fullunnið úr þeim
upplýsingum, sem könnunin getur
gefíð, hefur hér verið skýrt frá aðal-
atriðum.
Ef einhver lesandinn finnur hjá sér
köllun til að leggja frekari orð í belg,
er utanáskriftin á bréf til okkar þessi:
Ritstjórn Úrvals
Hlíðartúni 9
270 Varmá
Ritstjóri
15—20% umferðaróhappa í Bandaríkjunum eiga rætur að rekja,
beint eða óbeint, til notkunar á maríjúana, segir í frétt frá fíkniefna-
deild ríkisins. National Enquirer