Úrval - 01.03.1981, Page 127

Úrval - 01.03.1981, Page 127
EITURLYFJASTRÍÐIÐÁ MIAMI nöfnum. Fimm bankanna voru í eigu smyglaranna sjálfra. Mikið af „dauðadollurunum” sem komið er undan úr landi snúa aftur til Suður-Florida og eru fjárfestir þar á löglegan hátt. Charles Kimball sérfræðingur í fasteignaviðskiptum og ráðinn glæparáðgjafi ríkisins skýrir frá því að á síðustu sex mánuðum hafi glæpafélagar komist yfir 191,1 milljón dollara virði í fasteignum í Suður-Florida. Smyglari nokkur frá Kólumbíu á nú sjö hús í Dade County, fyrir utan skrifstofu- byggingu, tvær vöruskemmur, fjögur stór landsvæði og þrjú fjölbýlishús. Brunnur þessa ógnar fjármálaveldis liggur djúpt inni í latnesku Ameríku. Eiturlyfjadeildin heldur þvl fram að 1 Kólumbíu einni séu 50 kókainverk- smiðjur, flestar undir stjórn glæpa- fjölskyldna í Medellín. Þeirra hópur hefur innan sinna vébanda stjórn- málamenn, lögreglustjóra og yfirmenn hermála sem allir stuðla að verndun framleiðslunnar. Til dæmis geta amerískir kaupendur, sem nota leyni- lega lendingarstaði til að sækja kókainbirgðir á, búist við að verða að greiða aukalega 2000 dollara á kíló — en sú fjárhæð er notuð til að hafa hópa innan alríkislögreglunnar góða. Þar sem milljónir dollara eru 1 veði er ekkert sem stöðvar miðlarana — ekki heldur morð — öllu er fórnað til að vernda fjárfestinguna. Venjulegur ,,leigumorðingjasamningur”er gerður í Kólumblu. Morðingjanum er smyglað inn í Bandaríkin eða þá að 125 hann kemst þangað á fölskum skilríkjum, hann fer svo í „örugga húsið” á Miamisvæðinu, þar sem hann fær mynd af fórnarlambinu og upplýsingar um mögulega staði þar sem það gæti verið. Innan dags frá morðinu er sá er það framdi á leið til Kólumbíu. Þó að hann sé hand- tekinn eru ekki miklar líkur á að það takist að rekja slóðina. Þau fáu vitni sem lögreglan finnur neita venjulega að starfa með henni — og það er ekki að ástæðulausu. Síðla árs 1979 hélt Miami lögreglan sig hafa vitni sem vildi tala ef því væri veitt vernd og nafnleynd. En 1 morð- deildinni breytti vitnið um skoðun. ,,Vitið þið það, að bara það að vera hér 1 þessari byggingu er nóg til að ég verðidrepinn,” sagði vitnið. Það var rétt. Tveim mánuðum slðar fannst hann sundurskotinn á bílastæði. Þótt eiturlyfjasmyglarar náist og séu dæmdir er fangelsisvist þeirra að meðaltali aðeins þrjú ár, sem er lítt fráfælandi. Það er ennþá auðveldara fyrir stóru smyglarana. Þeir bara borga tryggingarfé og flýja land. Smyglari nokkur á Miami lét eina milljón dollara í veð án þess að depla auga. Auðvitað sást hann ekki meir. Eða eins og stjórnandi Eiturlyfja- deildarinnar sagði við nefnd sem fjallaði um dómana: ,,Veð er bara önnur tegund kostnaðar — og miði til frelsisins.” Það þarf að breyta tryggingarfjár- fyrirkomulaginu auk þess sem brýn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.