Úrval - 01.11.1982, Síða 86

Úrval - 01.11.1982, Síða 86
84 ÚRVAL honum af hans eigin rannsóknum á eiturefnum. Gac verið að Napóleoni hefði verið byrlað eitur? Það gat þá varla hafa verið með einum ban- vænum skammti. Vísbendingar um það hefðu áreiðanlega komið fram annaðhvort við krufninguna eða í frá- sögnum viðstaddra af síðustu stund- unum. En gat hugsast að þarna hefði verið hæg eitrun á ferðinni sem náði yfir mánuði eða jafnvel ár, endurteknir smáskammtar af eitri — sem á þessum tíma var langlíklegast arseník? Mynstrið fór að skýrast. Svefnsýki og svefnleysi á víxl, þrútnir fætur, allsherjar magnleysi, stækkuð lifur, ailt þetta taldi Forshufvud einkenni á sígengri arseníkeitrun. Arseník var sérstaklega algengt i Frakklandi fyrir daga Napóleons. Þá fékk það viðurnefnið ,,erfðaduftið” af því að það var svo oft notað til að flýta fyrir erfðum. Það er lyktarlaust og nær bragðlaust og auðvelt að koma því í nærri hvaða mat eða drykk sem er án þess að vart verði við. En það var líka hægt með síendurteknum smá- skömmtum að fyrirfara fórnar- lambinu smátt og smátt, á mánuðum eða árum. Kosturinn við að velja seinvirku aðferðina var sá að það var ekki fyrr en talsvert eftir daga Napóleons að hægt var að greina sígenga (hægvirka) arseníkeitrun vegna þess að einkenn- in eru svo lík ýmsum algengum kvill- um. Ef ákveðin lyf — sérstaklega uppsöluvínsteinn (tartar emetic) og kvikasilfursklóríð (calomel) — voru notuð samhliða arseníki, var líklegt að bani myndi hljótast af án þess að nokkurt arseník fyndist í maga fórnarlambsins þótt það væri krufið. Þar sem læknat Napóleonstímans gáfu þessi tvö lyf við næstum öllum umkvörtunum taldi Forshufvud mögulegt fyrir morðingjann að láta lækninn um að binda endahnútinn á ódæðið — sem mátti þá telja hinn fullkomna glæp. Og ljóst var að Napóleoni hafði bæði verið gefinn uppsöluvínsteinn og kvikasilfurs- klóríð þessasíðustu ævidaga. Kenningin um arseníkeitrun svar- aði mörgum áleitnum spurningum um fráfall Napóleons. Það sem var athugavert við algengustu kenninguna um dauða Napóleons — að hann hefði látist af magakrabba — var að fórnarlömb krabbameins horast eftir því sem meinið ágerist. En Napóleon fitnaði og fitnaði nánast fram á banadægur. Offita er einmitt algeng með hægri arseníkeitrun. Forshufvud sagði engum nema konu sinni frá þessari kenningu og lagði svo málið til hliðar. Þetta var, þegar öllu var á botninn hvolft, ekki hans sérgrein. Þar að auki hlaut þetta að liggja öðrum í augum uppi. , ,Þetta hljóta allir sjúkdómafræðingar og eiturfræðingar að sjá,” sagði hann. Lífsglaður keisari Portúgalir fundu St. Helenu 1502. Á nítjándu öld var hún í eigu breska
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.