Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 21

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 21
21 Fjölraddað leiðarstef í skólastarfi Það var ekki einfalt verk að taka við grunnskólanum frá ríkinu fyrir aldarfjórðungi. Hægt væri að hafa langt mál um kerfislægar og fjárhagslegar hindranir sem yfirstíga þurfti - og yfirstíga þarf enn. Mig langar þó að ræða eina sérstaka áskorun sem okkur yfirsést stundum en er þó hryggjarstykkið í skólastarfi. Einkenni á heilbrigðu skólastarfi er fjölbreytni - en þó fjölbreytni sem stefnir að sama grundvallarmarkmiði. Skólakerfi eru í eðli sínu rammpólitísk og með aukinni dreifstýringu eykst krafan um að kerfið hafi skýra stefnu þrátt fyrir fjölbreytt pólitískt og félagslegt samhengi. Áður en ríkið flutti grunnskólann yfir til sveitarfélaganna hafði það fallið á því pólitíska prófi að tryggja samstöðu um grundvallarhlutverk menntunar. Þvert á móti hafði hin eiginlega menntastefna landsins, sem grundvölluð var í grunnskólalögunum frá 1974, mætt pólitískum mótvindi sem í kjölfarið braust út í margvíslegum deilum og jafnvel átökum. Sturlumálið og Sögukennsluskammdegið mætti nefna. Átök um grundvallarmál skapa bresti sem hindra að róið sé að sama marki. Þau eiga fátt sameiginlegt með eðlilegum skoðanamun eða ólíkum, faglegum sjónarmiðum. Hlutverk sveitarfélaganna var kannski fyrst og fremst að finna leiðir til að róa í sömu átt. Það reyndist auðvitað ekki einfalt og óþarfi er að rekja í smáatriðum þær hindranir sem á veginum hafa orðið. Það hafa hins vegar einnig orðið sigrar og, jafn þversagnarkennt og það kann að hljóma, virðist öflugasti lykillinn að samstöðunni felast í því að hafa hugrekki til að leyfa fjölbreytninni að blómstra. Íslenskir skólar eiga ekki að vera eins - alveg eins og íslensk sveitarfélög eiga ekki að vera eins. Allar tilraunir til að steypa okkur öll í sama mót eru ekki aðeins dæmdar til að mistakast heldur byggja á misskilningi um það hvað felst í því að vera samfélag. Það var ekki einhugur hjá þjóðinni um það á sínum tíma að stærri samfélög væru hin æskilega og eðlilega byggðaþróun. Það er alveg ljóst að þorps- og bæjarsamfélög voru á sínum tíma álitin einhverskonar uppsöfnun félagslegra vandamála. Svipuð viðhorf mátti greina í umfjöllun um skólana þegar þeir spruttu upp í þéttbýlinu. Við búum í samfélagi af sömu ástæðu og hljóðfæraleikarinn gengur í hljómsveit eða söngvarinn fer í kór. Rými þess mögulega stækkar með fleiri, ólíkum röddum. Við færum á mis við fegurðina í tónlist ef við ætluðumst til þess að pákan, sellóið og fiðlan gæfu öll frá sér sama hljóminn. Mig langar að bera saman tvenns konar skólaþróun sem átt hefur sér stað í grunnskólanum frá því að sveitarfélögin tóku við. Önnur tegundin tel ég að sé varhugaverð og árangurslítil. Hin held ég að sé á heimsmælikvarða. Það má líta á samband skólastarfs og stjórnvalda sem samspil regns og ræktunar. Regnið kemur ofan frá og er nauðsynlegt öllu lífi. Gróðurinn sprettur úr þeim jarðvegi sem til staðar er. Of mikið regn drekkir gróðri en í þurrkatíð skrælnar hann. Það má nefna mýmörg framfaraverkefni, sem jafnvel eru sett í gang af góðum hug, sem einkennast fyrst og fremst af skilaboðum að ofan, jafnvel valdboði; regni eða slagviðri. Sumir þættir í innleiðingu skóla án aðgreiningar falla Ragnar Þór Pétursson Formaður Kennarasambands Íslands Austurbæjarskóli í Reykjavík. Kópavogsskóli. Grunnskólinn Vogum. 25 ÁR FRÁ YFIRFÆRSLU GRUNNSKÓLANS

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.