Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 57

Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 57
launakostnaðar sveitarfélag og útsvarstekna en hækkar þegar í bakseglin slær. Þetta má glöggt greina í mynd 2. Á hrun árunum 2009-2011 fer hlutfallið upp í 88-90% og lækkar næstu árin. Þessi áhrif er enn skýrari í núverandi samdráttarskeiði, en í fyrra fóru nær allar útsvarstekjur, eða 96%, í að greiða laun og launatengd gjöld. Hagsveiflur eru reglulegar en þó er hver með sínum svip. Þannig hefur íslenskur þjóðarbúskapur gengið í gegnum tvö lík en þó ólík samdráttarskeið á undanförnum 10-12 árum. Hrunið 2008 hafði för með sér mikinn samdrátt landsframleiðslu, alls 10,5% árin 2009 og 2010. Fyrst og fremst var um skuldakreppu að ræða sem síðar hafði áhrif á kaupmátt, atvinnu og loks tekjur. Bankahrunið og skuldastaðan þrengdu verulega að möguleikum til hagstjórnar. Sveitarfélögin fóru ekki varhluta af þessu eins og enn er í fersku minni. Skuldir þeirra stökkbreyttust, tekjur drógust saman og útgjöld til félagsþjónustu snarhækkuðu. Til þess að laga skuldastöðuna var sveitarfélögum nauðugur einn kostur að draga úr framkvæmdum hvort sem er til viðhalds eða nýframkvæmda og súpa sveitarfélög enn seyðið af því. Kórónuveirukreppan er fyrst og fremst tekjukreppa, fyrst í ferðaþjónustu en síðar í ýmsum atvinnugreinum. Hagstofa áætlar að samdráttur landsframleiðslu hafi numið 6,5% 2020. Samdráttarskeiðið telur hagstofa verða stutt, því stofnunin spáir 2,6% hagvexti í ár og annað eins á næsta ári. Þótt hagvöxtur glæðist verður atvinnuleysið áfram þrálátt að mati hagstofunnar og síst betri horfur á vinnumarkaði nú en á árunum eftir hrun. Hagstofa reiknar með að atvinnuleysi verði 7,8% af vinnuafli í ár, sem er svipað og árið 2010. Eftir fimm ár, eða árið 2026, verður atvinnuleysi áfram verulegt eða um 4,3%. Þetta er ekki ósvipuð þróun og varð eftir hrun. Veiran veldur búsifjum Hóflegrar bjartsýni gætti í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2020 sem litaðist þó af erfiðleikum í ferðaþjónustu vegna falls WOW og aðeins tæplega 2% hagvexti. Þannig var gert ráð fyrir að efnahagur og afkoma yrðu ívið lakari en 2019. Áætlað var að veltufé frá rekstri yrði rösklega 8%, FJÁRMÁL SVEITARFÉLAGA 57 Hagsveiflur eru reglulegar en þó er hver með sínum svip. Þannig hefur íslenskur þjóðarbúskapur gengið í gegnum tvö lík en þó ólík samdráttarskeið á undanförnum 10-12 árum. nokkru minna en 2019, en að skuldir og skuldbindingar myndu lækka lítillega í hlutfalli við tekjur úr 104% í 103% og fjárfestingar yrði svipaðar og 2019, í kringum 12,8% af tekjum. Kórónuveirukrísan kollvarpaði þessum áætlunum. Mikil óvissa um framvindu efnahagsmála ríkti þegar veiran kom fram. Nokkur sveitarfélög og samtök þeirra lögðu fram sviðsmyndir og spár um að 10-20% atvinnuleysi myndi vara um nokkurra ára skeið. Á þeim forsendum fékkst að til þess að sveitarfélög gætu staðið við fjárhagsáætlanir sínar og haldið uppi þróttmiklum fjárfestingum til að auka atvinnu væri lánsfjárþörf þeirra um 50 ma.kr. í heild fyrir árin 2020 – 2021. Kröfur voru gerðar til ríkissjóðs um að hann greiddi fyrirfram þessa fjárhæð og/ eða liðkaði fyrir aðgengi sveitarfélaga að lánsfjármagni á hagstæðum kjörum. Af almennum aðgerðum varð þó ekki, nema í mjög takmörkuðu mæli. Afkoma sveitarfélaga reyndist mun betri í fyrra en óttast var. Kemur þar margt til, en ekki síst í því að tekjuþróunin varð mun hagstæðari. Í fyrsta lagi varð atvinnuleysi töluvert minna en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Í öðru lagi höfðu ýmsar aðgerðir ríkisins í för með sér að áhrif atvinnuleysis á útsvarstekjur voru ekki jafn miklar og ella hefði orðið. Heimild til útgreiðslu séreignasparnaðar bætti í þriðja lagi umtalsverðum fjárhæðum við útsvarsstofn. Atvinnuleysi varð einkum í ferðaþjónustu þar sem laun eru tiltölulega lág og munur á þeim og atvinnuleysisbótum tiltölulega lítill. Allt aðrar og betur launaðar stéttir misstu vinnuna í hruninu sem hafði mikil áhrif á útsvarsstofninn. Þótt afkoma sveitarfélaga 2020 hafi reynst betri en óttast var blasir við að afkoman var mjög slök. Veltufé í hlutfalli við tekjur varð aðeins helmingur þess sem fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir og skuldir fóru 28 ma.kr. umfram áætlun. Laun og tengd gjöld hækkuðu verulega og má án efa rekja að nokkru til aðgerða vegna faraldursins. En einnig reyndust lífskjarasamningarnir, sem kváðu á um launahækkanir með fastri krónutölu, sveitarfélögum ákaflega dýrir, enda meðallaun tiltölulega lág hjá Mynd 1. Mynd 2.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.