Mímir - 01.06.1981, Blaðsíða 31
ferðamynstrinu. Mynstur Auðunar þáttar
flækist þó örlítið vegna þess að hann á skipti
við tvo konunga, sem þar að auki eiga í
ófriði sín á milli. Suðurganga Auðunar þjón-
ar einungis þeim tilgangi að dýpka mannlýs-
ingar þeirra Auðunar og Sveins, þar er hnykkt
á þeirra helstu mannkostum, staðfestu Auð-
unar og veglyndi Sveins. Rómarförin getur
vart talist neinn útúrdúr, þar sem hún teng-
ist meginviðfangsefninu jafn vel og raun ber
vitni.
Auðunar þáttur sem smásaga.
Auðunar þáttur hefur iafnan notið mikilla
vinsælda, enginn þáttur hefur jafn oft verið
gefinn út, auk þess sem hann hefur verið
þýddur á fjölda tungumála. Jónas Kristiáns-
son fer örugglega með rétt mál þegar hann
segir um Auðunar þátt: ,,. . . á íslensku frum-
máli hefur hann verið prentaður oftar en
nokkurt annað rit í óbundnu máli“ (T. Krist-
jánsson ’78:346). Þátturinn er varðveittur í
tveimur stórum handritum, Flateyjarbók og
Morkinskinnu. Texti Morkinskinnu er fáorð-
aðri og knappari og hann er vfirleitt notaður
í útgáfum, t.a.m. í útgáfu Islenskra fornrita.
Fagurfræðilegt mat á þættinum er yfirleitt á
einn veg: ..Auðunar þáttur er sannkölluð
perla meðal Islendinaa þátta. Islensk frásagn-
arlist birtist þar á fullkomnasta stigi“ ÍB.K.Þ.
og G. T. ’43:cv). „Auduns-táten ár en briljant
beráttelse“ (Wikander ’64:90) Fullvrðingar
sem þessar grundvallast á því hversu frásögn-
in er hnitmiðuð og hversu meistaralega þræð-
ir verksins mætast að lokum í hápunkti bess.
Það er fullvrt hér að framan að borri fs-
lendin.ga þátta fullnæm í flestu þeim kröf-
um sem gerðar eru til smásagna. Auðunar
báttur er Ivsandi dæmi hvað betta varðar.
Efnið er rakið á knappan og hlutlægan hátt
og siónarhornið er fastbundið. 011 framsetn-
ing efnisins miðar að því að draga upp sem
skýrasta mynd af aðalpersónunum þremur,
þ.e. Auðuni, Haraldi konungi harðráða og
Sveini Ulfssyni Danakonungi. I samskiptum
þeirra koma mannkostirnir fram og með
giörðum sínum skýra þeir myndirnar og dýpka
skuggana í lýsingunum.
Frásögnin takmarkast við fáa atburði,
raunar aðeins fjóra, og eru þeir rækilega svið-
settir. Samtöl eru stærsti hluti frásagnarinn-
ar og framsetningin því mjög leikræn. 1. svið
markast af fvrri fundi Auðunar og Flaralds,
áður en Auðunn kemst til Danmerkur. 2.
svið er viðræður Auðunar og Sveins fyrir
pílagrímsferðina. 3. svið er seinni samvera
Auðunar og Sveins og undirbúningur heirn-
ferðar. 4. svið er seinni fundur Auðunar og
Haralds, áður en Auðunn heldur vfir hafið
eftir vel lukkaða utanferð. Öll áherslan er
lögð á að láta þessar stórkostlegu manngerðir
varpa ljósi hverja á aðra, enda liggja gæði
þáttarins fyrst og fremst í eftirminnilegum
mannlýsingum.
Hin rnikla ögun í frásögninni verður enn
virðingarverðari þegar það er haft í huga að
frásögnin býður upp á marga freistandi útúr-
dúra. En sem betur fer er ekki fallið fyrir
neinum freistingum. Landsháttum í Noregi,
Danmörku og á Grænlandi er ekkert lýst,
enda tíðkast það ekki í fornsögunum vfir-
leitt. Engat tilraunir eru gerðar til að Ivsa
ferðum Auðunar, sem væru mikið sagnaefni.
..Hann ferr nú síðan suðr með landi ok í
Vík austr ok bá til Danmerkr“ (363). ,,Síðan
lætr hann í haf ok komr í Nóreg“ (367).
....ok fór út begar um sumarit til Islands“
(3681. Jafnvel Rómarför Auðunar er lýst í
eins fáum orðum og komist verður af með,
ef Fkamlegt ástand hans er undanskilið: ,.Nú
fór bann ferðat sinnar, unz hann komr suðr
í Rómaborg. Ok er hann hefir bar dvalzk sem
hann tíðir, bá ferr hann antr; . . .“ (364).
Þessi gífurle.ga ögu.n í frásövninni fær stuðn-
ing af málfarinu, sem er sérlega meitlað. Frá-
sögnin er algerlega bundin við bemað, sem
e.t.v. mætti orða svo: Með staðfestu og heið-
arleika kallarðu fram hið jákvæða t náung-
anum og kemst leiðar binnar í lífinu.
Sjálfstæði Auðunar þáttar gagnvart öðrum
29