Mímir - 01.06.1981, Qupperneq 89

Mímir - 01.06.1981, Qupperneq 89
eign þeírra við yfirvöldin. Þar við bætist sjónarmið sem Páll Melsteð lýsir svo vel í bréfi, sennilega 1836, þar sem hann leggst gegn því að Kolbeinssynir verði báðir látnir lausir úr fangelsi. Orsökin er m. a. þessi: . . . en Reise til Danmark, selv om det er for at indsættes i en Straffeanstalt, i den eenfoldigste Almues 0jne her i Landet gjælder for et Siags Forfremmelse, hvilket atter giör selv den lös- ladte Forbryder en vis Anseelse og Indflydelse iblandt sine Ligemænd, der, hvis han ei for Alvor er vendt tilbage fra Lasternes Vej, kan blive farlig for den offentlige Sikkerhed. (Bréfab. Árn. III, 9, nr. 249). Brynjúlfur tilfærir í tvígang þá sögn að móðir Sigurðar hafi gefið hann djöflinum þegar hún gekk með hann til að forða föð- ur hans frá ákæru fyrir sauðaþjófnað (69, 252). Skýring hans er þessi: ,,Er auðráðið, að hún hefir viljað segja þetta syni sínum til málsbóta, er hún heyrði svo almennt á- felldan“ (69). Þarf ekki að efast um að slíkir áfellisdómar hafi verið kveðnir upp yfir Sig- urði af öllum þorra fólks fyrst í stað a. m. k. En ef fyrrverandi tukthúslimir hafa átt greiða leið að hjörtum landsmanna fyrir það eitt að hafa stigið á erlenda grund, þá má nærri geta hverjar taugar þjóð í sjálfstæðisbaráttu hlýtur að hafa haft til þeirra sem fallið höfðu í valinn „á útivelli“ og áttu ekki afturkvæmt í eigin persónu. Líklegast er að hetjugerving Sigurðar komi eklci til að ráði fyrr en sagnir af „fangavarð- arvígi“ hans eru komnar á kreik. Um það atriði er þó að sjálfsögðu erfitt að fullyrða með nokkurri vissu. Nauðsynlegt er t. d. að minna á að frásögn Brynjúlfs ber öll nokkur merki hetjugervingar. Það má þó skýra þann- ig að hetjugervingin „gangi til baka“ og hafi þannig áhrif á sagnir þær er greina frá fyrri atburðum. Lífshlaup hetjunnar mótast þá allt, manna á meðal, af þeim atburðum er drógu hana til dauða í munnmælunum. Nú kjmni einhver að segja að hetjuverk Sigurðar séu öll í anda sannleikans; hann hafi í raun verið verndari hinna smáu og refsivöndur þeirra sem meira máttu sín. Þá er þess að gæta að til eru sagnir þar sem hlutverk hans er af allt öðrum toga (sbr. Is- lenzkir sagnaþ. III. 65—66), auk þess sem vitnisburður traustari heimilda rennir litlum stoðum undir göfugt hlutskipti hans í lífinu. Áður hefur verið minnst á tvö atriði sem fyrir koma í sögunni til skýringar á gerðum Sigurðar. Annars vegar er ógæfuhugmyndin sem hann á í kompaníi við Gretti sterka, hins vegar sögnin um að móðir hans hafi gefið hann djöflinum, sem telst víst þjóð- sagnaminni (sbr. Br. J. 1975:56nm). Brynj- úlfi er síðari skýringin nokkur þyrnir í aug- um, en hann lætur hins vegar ekki beinlínis í ljós álit sitt á hinni fyrri. í lok frásagnar- innar af Sigurði birtist síðan þriðja skýring- in, öllu nútímalegri en hinar tvær. Hún er líka í einkar skemmtilegu samhengi. Kvæði M. Lau, sem lýsir Sigurði sem iðrandi synd- ara, er nýlokið, og í kjölfarið fylgir þessi klausa: Pað er mál manna, að Sigurður hafi borið af öllum bræðrum sínum bæði vöxt, vaxtarlag og fríðleik, afl hreysti, fimleik og alla atgjörvi. Pykir líklegt, að ævi hans hefði orðið allt á annan veg, ef auðna hefði veitt honum betra uppeldi. (248) Þessi skýring á það raunar sameiginlegt með þeirri sem segir hann hafa verið gefinn djöfl- inum að skella skuldinni á móður hans öðr- um fremur. Henni er nefnilega lýst sem hinu versta foraði í sögunni, svo jafnvel Brynjúlfi sjálfum blöskrar á köflum. Öllum ber skýr- ingunum reyndar saman um að skrifa brest- ina í fari Sigurðar á hans eigin reikning. Munurinn felst einungis í því hvort með- fæddir eða áunnir eiginleikar liggi að baki. Þessar skýringartilraunir verða þó að telj- ast nokkuð utanveltu í sögunni. Eins og áð- ur hefur verið bent á verður andúðar í garð Sigurðar lítt eða ekki vart þar; þvert á móti gætir aðdáunar á hreysti kappans, réttlæt- ingar á gerðum hans, en orsakaleitar aðeins 87
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.