Mímir - 01.06.1998, Síða 12

Mímir - 01.06.1998, Síða 12
12 Björns hafði hann þegar meiri útbreiðslu. Mið- að við útbreiðslusjónanniðið ætti því að velja kv-framburð fram yfir hv-framburð. Það er erfítt að segja til um hvort auðveldara sé að kenna barni hv-framburð sem alist hefur upp við kv-framburð eða öfugt. Það hlýtur að vera einstaklingsbundið. Því fínnst mér varhugavert að ætla að velja út frá kennslusjónarmiði. Það er endalaust hægt að deila um það hvor fram- burðurinn er fallegri. Þar af leiðandi er ótækt að velja út frá fegurðarsjónarmiði. Miðað við stafsetningarsjónarmiðið er hægt að taka hv- framburðinn fram yfir kv-framburðinn því að hann helst ntjög í hendur við stafsetninguna. Fræðslumálastjórn vísaði tillögum Björns til heimspekideildar Háskóla íslands en þar var lagst gegn því að koma upp samræmdum frarn- burði „en sú tillaga sett frarn að öllum frarn- burðarmállýskum skyldi gert nokkurn veginn jafn hátt undir höfði. Þó var lögð áhersla á að halda bæri í harðmæli og hv-framburð“ (Hösk- uldur Þráinsson og Indriði Gíslason 1993:14). 3.2 Á að samræma íslenskan framburð? Samræming framburðar mundi „ . . . stuðla að því að gefa félagslegum hleypidómum byr undir báða vængi“ (Halldór Halldórsson 1955:85). Með henni gæti myndast yfirstéttar- mál og fólk færi í mannjöfnuð. Ég tel Halldór Halldórsson hafa mikið til síns máls þegar hann nefnir þetta sem röksemd á móti sam- ræmingu framburðar. Ef kenna ætti einhver ákveðin afbrigði framburðar þyrftu margir að læra framburð ýmissa orða alfarið upp á nýtt. Halldóri Hall- dórssyni og Birni Guðfinnssyni var þó báðurn Ijóst að samræming á framburði yrði, hvort sem fólki líkaði betur eða verr. Sumir munu vera andvígir hvers konar samræmingu á framburði. [- - -] En í því sambandi verður að hafa hugfast, að ákveðin samrceming er að farafram. Hinn eldri framburð- ur er hvarvetna á undanhaldi, og verði málið látið afskipta- laust, getur ekki liðið langur tími, unz t.d. fet>-framburður sigr- ar ttf-framburð, linmæli sigrar harðmæli og flámæli útrýmir réttmæli (Björn Guðfinnsson 1981:77). Árið 1986 skilaði nefnd á vegum mennta- málaráðherra álitsgerð um málvöndun og framburðarkennslu í grunnskólum. Nefndin telur mikilvægt að varðveita einleiti íslenskrar tungu, varast fordóma gagnvart smávægilegum staðbundnum einkennum og sporna við fram- burðarnýjungum (sjá Höskuld Þráinsson og Indriða Gíslason 1993:21). Auk þess leggur nefndin áherslu á það í álitsgerð sinni ... að skipulega sé gengið að fræðslu um íslenskan framburð og telur nauðsynlegt að móðurmálskennarar séu sem best að sér um þetta efni. [—] Þá verða leiðbeinendur að þekkja vel ís- Ienskar mállýskur og eðli þeirra, þeir verða að vera til þess færir að fræða um skýrleika í ífam- burði og átta sig á því að framburður er mis- munandi eftir aðstæðum (Höskuldur Þráins- son og Indriði Gíslason 1993:21). Nú á dögum ber því í skólum að gera grein fyrir framburðareinkennum mállýskanna en taka ekkert þeirra fram yfir annað. Hv- og kv- framburður eiga þar af leiðandi að eiga jafnan rétt á sér. Lokaorð Erfitt getur verið að gera sér grein fyrir framburði íslendinga fyrr á öldum. Þó er hægt að notast við ýmsar vísbendingar, s.s. rithátt og stuðlasetningar. Það er ljóst að hv- er uppruna- legri en kv-framburðurinn. Við getum þó ekki sagt til um hvers konar afbrigði af hv-fram- burðinum hafi tíðkast. Miklar rannsóknir á framburðarafbrigðum hafa verið gerðar á 20. öldinni og hafa þær komið miklu til skila. Stærstan þátt í því hafa Björn Guðfinnsson, Höskuldur Þráinsson og Kristján Árnason átt. Þótt rannsókn Björns Guðfinnssonar sé barn síns tíma þá hefur hún skipt sköpum fyrir síðari tíma rannsóknir. Rannsóknir hafa sýnt að hv-framburðurinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.