Mímir - 01.06.1998, Síða 27
27
ritum Snorra-Eddu. Konungsbók Eddukvæða,
eða Codex Regius, er líklega skrifuð á seinni
hluta 13- aldar (1265-1280). Þar er kvæðið
heillegast og í skýrustu samhengi. Hauksbók er
talin skrifuð í byrjun 14. aldar af Hauki Erlends-
syni eða undir hans leiðsögn. Hluti Völuspár er
með öllu ólæsilegur í Hauksbók, sérstaklega er
önnur blaðsíða kvæðisins illa farin.
Textar þessara tveggja handrita eru um
margt ólíkir, vísuröð er önnur auk þess sem
nokkrar vísur koma ekki fyrir í báðum handrit-
um.
Ekkert er vitað um uppruna Völuspár. Höf-
undur er óþekktur og eins er ekki vitað
hvenær eða hvar kvæðið er ort. Þó hallast flest-
ir að því að það sé samið á íslandi.
Ætla má að langur tími líði frá því kvæðið
er ort og þar til það er skráð á þau handrit sem
þekkt eru í dag. Völuspá hefur í millitíðinni
varðveist í munnlegri geymd og líklega breyst
nokkuð. Eflaust hafa verið til fleiri en ein gerð
Völuspár þó heildarsvipur kvæðisins hafi hald-
ist, þetta sést best á þeim mismunandi gerðum
sem varðveittar eru.
Efni kvæðisins er á þá leið að Óðinn geng-
ur á fund völvu og fær hana til að spá fyrir um
örlög heimsins. Áður en völvan hefur spá sína
rekur hún heimssöguna fram til þess tíma er
Óðinn kemur að finna hana. Þar lýsir hún
sköpun heimsins og skipulagi, gullöld ása og
lokum hennar, sköpun dverga og manna,
heimstrénu, örlaganornum, komu hinnar
kynngimögnuðu Gullveigar og stríðinu við
vani sem fylgir í kjölfarið. Loks lýsir hún spill-
ingu og eiðrofum ása og hvernig þeir leggja
allt í sölurnar til að endurheimta sælu gullald-
arinnar. Eftir þetta endurlit lýsir völvan því
hvernig heimur goða og manna er smám
saman að hrynja, hún rekur íýrir Óðni þá
atburði sem nú eiga sér stað allt í kringum þau.
Valkyrjur safnast saman og stríð liggur í loft-
inu. Baldur er veginn og hans er hefnt, Loki er
bundinn. Hún lýsir leið manna til glötunar og
hræðilegum kvölum þeirra, soltnir úlfar reika
um orrustuvelli og risavaxinn úlfur gleypir
tunglið. Hanar í öllum heimum vekja menn til
orrustu, ragnarök eru í nánd.
Framtíðarsýn völvunnar er hrollvekjandi.
Fenrisúlfur er laus, blóðugir bardagar geisa og
engum er hlíft. Óðinn fer á fund Mímis sem
leitar allra ráða en heimsendir verður ekki um-
flúinn. Óvinir sækja að úr öllum áttum, Loki
hefur gengið í lið jötna og siglir hraðbyri til
lokaorrustunnar. Goðin falla eitt af öðru uns
Þór stendur einn eftir og berst að lokum við
Miðgarðsorm. Sólin myrkvast og alelda jörðin
sekkur í sæ. Heimsendir.
Þrátt fyrir allt rís jörðin úr sæ og er nú
fegurri en nokkru sinni. Æsir snúa aftur og
friður ríkir á nýjan leik.Völvan hefur lokið spá
sinni.
Um leiðréttingar
Langflestum skýrendum Völuspár þykir
sjálfsagt að leiðrétta textann að einhverju leyti.
Sumar leiðréttingar eru svo rótgrónar að þær
virðast yfir alla gagnrýni hafnar, þær eru tekn-
ar upp eins og þær séu í raun hluti af hinu
upprunalega kvæði. Hér á eftir fara nokkur
dæmi um slíkar leiðréttingar.
Fyrsta dæmi:
16.
Uns þrjár komu
úr því liði
öflgir og ástgir
- æsir - að húsi
fundu á landi
lítt megandi
Ask, og Emblu
örlöglausa.
Önd þau né áttu,
óð þau né höfðu,
lá né læti
né litu goða.
Uns þrjár komu úr því liði er nær alltaf leið-
rétt í uns þrír komu. Þó stendurþriar (þrjár) í