Mímir - 01.06.1998, Page 45
45
Höskuldur Þráinsson
Um menntun íslenskukennara
og heildstæða móðurmálskennslu
í. Inngangur
Stór hluti þeirra sem stunda háskólanám í
íslensku leggur síðar íyrir sig kennslu í fram-
haldsskóla eða efri bekkjum grunnskóla. Ég
veit ekki hversu algengt það er að íslensku-
nemar stefni að kennslustarfi alveg frá upphafi
háskólanáms síns en áreiðanlega hafa margir
það bak við eyrað meðan þeir eru við nám og
vilja búa sig sem best undir slíkt starf.Við sem
höfum átt þátt í því að skipuleggja íslensku-
námið undanfarin ár eða áratugi höfum ekki
alltaf haft þetta í huga. Það er líka hægara sagt
en gert af ýmsum ástæðum.
í íyrsta Iagi eru háskólakennarar í íslensku
yfirleitt fræðimenn eða vísindamenn og valdir
til starfa með hliðsjón af því. Ástæðan er m.a.
sú að íslenskuskor Háskóla íslands er eini stað-
urinn í heiminum sem hefur það að megin-
markmiði að sinna fræðilegum rannsóknum á
íslensku máli og bókmenntum, fylgjast með í
þeim fræðum og skyldum fræðigreinum á al-
þjóðavettvangi og þjálfa vísindamenn framtíð-
arinnar á því sviði. Þetta gerir rniklar kröfur til
kennaranna og Ieggur þeim skyldur á herðar
sem þeir vilja gjarna sinna af bestu getu, enda
eru þær skyldur kannski í mestu samræmi við
undirbúning og áhugasvið kennaranna.
En íslenskunemar eru oft býsna stór og
sundurleitur hópur og þessi fræðilega áhersla
hentar þeim kannski ekki öllum jafnvel. Hún
er auðvitað mest í framhaldsnáminu, þ.e. í því
sem Iengi nefndist cand.mag.-nám en síðar
MA-nám. Margir þeirra sem tóku að sér
kennslu á framhaldsskólastigi að Ioknu BA-
prófi og námi í uppeldis- og kennslufræðum
fundu sig vanbúna til þess að sinna henni.
Sumum þeirra fannst hins vegar að í MA-nám-
inu væri fullmikil áhersla lögð á að mennta
fræðimenn og vísindamenn og þess vegna
hraus þeim hugur við því námi.Til að koma til
móts við þessar þarfir var komið á fót svo-
nefndu M.Paed-námi í íslensku fyrir nokkrum
árum. Það er fyrst og fremst ætlað verðandi
kennurum og felur í sér eins árs nám í kennslu-
greininni (íslensku), auk náms í kennslufræði
til kennsluréttinda (í Félagsvísindadeild), eins
og kunnugt er. Ætlast er til þess að nemendur
í þessu námi velji sér tiltekinn fjölda frarn-
haldsnámskeiða í íslenskum bókmenntum og
málfræði og treysti þannig fræðilega undir-
stöðumenntun sína, enda er traust fræðileg
undirstaða nauðsynleg fyrir kennara til þess að
þeir geti brugðist við nýjungum í kennsluhátt-
um og námskröftim á því skólastigi sem þeir
hafa valið sér að starfa á.Auk þess var frá upp-
hafi gert ráð fyrir því að einhver námskeið
yrðu sérstaklega „hönnuð“ fyrir nemendur í
þessu námi. Nú er komin nokkur reynsla á
þetta nám og því tímabært að velta því fýrir
sér hvernig til hafi tekist og hvað mætti gera til
að bæta úr hugsanlegum göllum. Ég ætla þó
ekki að reyna að gera neina heildarúttekt á því
hér, en mig langar til að benda á tvö atriði sem
ég held að nauðsynlegt sé að lagfæra til þess
að kennaranámið í íslenskunni nýtist eins vel
og það þarf að gera.