Mímir - 01.06.1998, Page 50
50
eitthvert kapp á að greina Gísla sögu í orð-
flokka eða setningarhluta eða rekja orðsifjar
allra torkennilegra orða sem þar kunna að
koma fyrir. En þeir eiga að notfæra sér mál-
fræðilega þekkingu nemendanna þar sem það
getur orðið til skilningsauka á verkinu eða til
þess að auka skilning nemendanna á mann-
legu máli almennt og móðurmálinu sérstak-
lega, meðal annars því sem greinir íslenskt nú-
tímamál frá máli fornra texta.
í lokin er nauðsynlegt að minna á að málin
horfa svolítið öðruvísi við í framhaldsskóla en
í grunnskóla. í framhaldsskóla hefur stundum
verið fengist við býsna heildstæða móðurmáls-
kennslu, þótt áfangakerfíð hafi haft nokkra til-
hneigingu til að draga úr henni og leiða til sér-
hæfðari bókmenntaáfanga og málfræðiáfanga
án verulegra tengsla, eins og ég nefndi áðan.
Auðvitað er eðlilegt að gefa nemendum á síð-
ari árum framhaldsskóla kost á nokkurri sér-
hæfingu í móðurmáli eftir áhugasviðum sín-
um. Það gefur kennurum líka kost á því að
kenna áfanga á sínu sérsviði þegar því er að
skipta, t.d. valáfanga í bókmenntum þar sem
mest áhersla er lögð á hreina bókmenntaum-
íjöllun, eða sérstaka málfræðiáfanga þar sem
áherslan er fyrst og fremst á málið sem við-
fangsefni, kannski með samanburði móður-
málsins við önnur mál eða frá einhverju öðru
málvísindalegu sjónarhorni. En um flesta ís-
lenskuáfanga í framhaldsskólum ætti þó að
gilda að þar beri að forðast þá stífu aðgrein-
ingu einstakra þátta móðurmálsins sem oft
hefur leitt til gerilsneyddrar umfjöllunar um
málfræði án tengsla við mál og málnotendur,
eða þá til sértækrar umfjöllunar urn bókmennt-
ir án hliðsjónar af máli. Þess vegna þurfa verð-
andi framhaldsskólakennarar líka að kunna skil
á því hvað felst í heildstæðri móðurmáls-
kennslu.
4. Lokaorð
í þessari grein hefur verið fjallað um
menntun íslenskukennara, einkum þeirra sem
sækja hana til Háskóla íslands, og leiðir til að
bæta hana. í því efni var bent á tvennt sem ég
tel að betur megi fara. í fyrsta lagi tel ég nauð-
synlegt að auka sambandið milli lcennslufræði
íslensku í kennslufræðináminu í Félagsvísinda-
deild og þess sem fram fer í íslenskunáminu
sjálfu í Háskólanum. í öðru lagi held ég að við
sem skipuleggjum íslenskunámið við Háskól-
ann eigum að gefa meiri gaum að þörfum verð-
andi kennara. Liður í því gæti verið að efna til
sérstaks námskeiðs í því að tengja fræðin við
það sem er fjallað uffl eða á samkvæmt nám-
skrá að fjalla um í móðurmálskennslunni í
efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskóla.
í því efni er kannski einna brýnast þessi miss-
erin að reyna að líta á efnið frá sjónarhóli
heildstæðrar móðurmálskennslu sem nú er
rnikið rætt um í umræðu um námskrá, fáir virð-
ast gera sér grein fyrir í hverju geti falist og
margir vantreysta sér til að leggja út í. Nem-
endur eiga að gera kröfu til okkar kennaranna
urn að við búum þá undir kennslu af þessu
tagi.
Bókaútgáfan
Bjartur
Bræðraborgarstíg 9
Sími: 562-1826
V
J