Mímir - 01.06.1998, Side 52

Mímir - 01.06.1998, Side 52
52 menntafræði og mætti halda því fram að bók- menntaleg lausn skáldsagna Halldórs Laxness sé þá engin lausn. Það er nær sanni að lesandinn sé skilinn eftir ráðvilltur,jafnvel hálfpirraður, reikandi um á víðavangi ásamt aðalpersónum sögunnar: Diljá á götum Rómar, Sölku Völku einni á bakk- anum á Óseyri, Snæfríði ríðandi burt með hin- um næstbesta sem hún vildi þó fyrir alla muni ekki, Uglu með blóm í fangi á götum Reykja- víkur, Bjarti í Sumarhúsum stumrandi yfir Ástu Sóllilju á heiðinni, Ólafí Kárasyni á leið upp á jökulinn, Þormóði kolbrúnarskáldi haltrandi burt frá konunginum sem hann flytur ekki gerplu sína þrátt fyrir að líf hans hafi haft það eitt takmark, Umba villtum í leit að þjóðbraut. Hver verða svo afdrif þessa fólks? Það vit- um við ekki. Margir lesendur hafa sagt mér að Ásta Sóllilja deyi á heiðinni og Ólafur Kárason á jöklinum og þeir sem hafa lesið Fóstbræðra- sögu vita ósköp vel að Þormóður kolbrúnar- skáld mun falla á Stiklarstöðum. En skáklið skil- ur við þau öll lifandi og ég er þess fullviss að það sé engin tilviljun. Þrátt fyrir allt er jafnan skilinn eftir örlítill efí, sögunni lýkur ekki á endanlegan hátt með dauða hetjunnar heldur eru lesendur jafnan skildir eftir með hann. Skáldsögum Halldórs Laxness lýkur jafnan utan dyra, á víðavangi, á bersvæði. Þó að Steinn Elliði loki sig inni í hinni heilögu katólsku kirkju með orðum um að maðurinn sé blekk- ing er lesandinn skilinn eftir úti með Diljá. Þannig eru sögulok Vefarans galopin og þetta á við um meira og minna öll verk skáldsins. Les- andinn verður sjálfur að ráða gáturnar og búa til þá lausn sem honum hentar, ákveða hvort Jón Hreggviðsson hefur drepið mann og hvenær maður drepi mann. Þess vegna er al- gengt að menn verði ekki á eitt sáttir um hver sé lausn þessa eða hins skáldverks Halldórs. Lausnin liggur ekki á lausu og því jafnvel gefið undir fótinn að engin lausn sé til.' Hin opnu sögulok eru eitt af höfundarein- kennum Halldórs Laxness og ber að skilja í samhengi við viðhorf hans til skáldskapar al- mennt. Peter Elallberg hefur bent á að skáldið haft párað á forsíðu að fyrstu bók sagnabálks þess sem síðar varð Heimsljós: „He over-writes and over-explaines.“4 Það var einmitt slíkt lof sem Halldór Laxness vildi fyrir allan mun forð- ast og hin opnu sögulok eru einn liður í þeirri viðleitni. En þeir eru fleiri. í Persónulegum minnisgreinum um skáld- sögur kemst hann svo að orði: Til að bæta fyrir smíðagalla og annað klastur sem orðið hefur í samsetníngu sögunnar, tekur höfundur uppá að þenja sig út með opinberum hugsjónabelgíngi, líklega til að sanna yfirvöldunum að hann sé besti maður þó hann geti ekki sagt sögu.... í miðri skáldsögu getur höfundurinn alt í einu byrjað ritgerð eða farið að halda ræðu um sjálfvalið efni, og aungan sakar, nema lesarinn verður þúngur fyrir höfðinu, leggur frá sér bókina og fer að lúra.5 Þessi orð er rituð árið 1962. Upp úr 1960 fer einmitt að vaxa fiskur um hrygg kenning- um í bókmenntafræði sem kallast viðtökufræði (reception theory á ensku) en þar er lögð áhersla á þátt lesandans (eða lesarans eins og Halldór kallar hann) í túlkun skáldverka og raunar allra texta. Listræn viðbrögð Halldórs eru að opna verk sín enn frernur og koma þannig til móts við lesarann. Hann er því enn sem fyrr einna fyrstur íslendinga að bregðast við nýjum hugmyndum í skáldskap eða heirn- speki eða stjórnmálum en eins og jafnan á eigin forsendum. Sjálfur verður Halldór Laxness seint sakað- ur um að reyna að hafa vit fyrir lesurum sín- um. Lesarinn fær ekkert að vita, forvitni hans er aldrei slökkt. Það er einmitt þessi skáldskap- arstefna, að ætla lesaranum nokkurn hlut í skáldverkinu, sem hefur gætt verk Halldórs Laxness óvenju miklu lífi og hér verður næst vikið að þeirri aðferð sem nýttist honum öðr- um fremur til þess: aðferð þversagnarinnar. Gott dæmi um hana hefur þegar komið hér fram í þessum orðum Jóns Hreggviðssonar: „Fari í helvíti sem ég drap mann. Og þó.“ Jón neitar því að hafa drepið mann - og þó neitar hann því ekki.

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.