Mímir - 01.06.1998, Side 55

Mímir - 01.06.1998, Side 55
55 þessa stund, þennan stað, þetta umhverfi. Benjamín notar það í neikvæðri merkingu en sjálfum þykir mér þetta sérdeilis fallegt orð og um leið viðeigandi um verk Halldórs Laxness. Tíð Halldórs Laxness var 20. öldin. Hann fæddist á öðru ári hennar og lést þegar aðeins þrjú ár voru eftir. Skáldskapur hans er skáld- skapur 20. aldar og til lítils að reyna að skilja hann án þess að reynt sé að skilja öldina þeg- ar hann var saminn. Hér er ég ekki að halda fram að verk Halldórs Laxness séu „stundleg", andstætt „eilífum" skáldverkum annarra. Ekk- ert listaverk er hafið yfir stað og stund. Þau eiga sér samhengi en þau skáldverk sem end- ast best eru einmitt þau sem fanga samtíma sinn og þversagnir hans á áhrifamestan hátt. Skáldverk sem ekki snertir taug í samtímanum úreldist og gleymist. Það sem ekki kemur sam- tíðinni við mun ekki korna framtíðinni við. Með orðum Hólmfríðar skáldkonu úr Heims- ljósi: Ef þér tekst að yrkja það í brjóst þjóðarinnar, þá er það gott. ...Annar mælikvarði er ekki til.15 Þó að tíminn hafí kannski ekki alltaf viljað tengja sig við Halldór Laxness, þá vildi Halldór svo sannarlega tengja sig tímanum og gott bet- ur, hann vildi gera 20. öldina að sinni. Og það tókst ótrúlega vel. Og um hvað snerist þessi öld skáldsins? Á undan henni fóru 18. og 19. öld.Á þeirn öldurn tileinkaði mannkynið sér nýja tækni og nýja hugsun. Einkenni þessara alda var bjartsýni sem stafaði af trú á tækni, vísindi og framfarir. Vísindastefna þess tírna var pósitívismi sem í felst m.a. að niðurstöður vísindanna geti verið algildar og endanlegar. 18. og 19. öldinni heyra til trú á eina „raunverulega mynd“ og einn „sannleika" sem mannkynið nálgaðist óðfluga. Þessi tíðarandi kemur hvergi betur fram en í einkunnarorðum ólympíuleikanna hinna síðari (sem eru aðeins sex árum eldri en Halldór Lax- ness); citius, altius, fortius. Hraðar, hærra, sterk- ar. Á 20. öld kom brestur í framfaratrúna, rétt eins og íslandsklukkuna í samnefndri sögu Halldórs Laxness. Þegar Halldór var unglingur stóð yfir í Evrópu tilgangslausasta blóðbað sem menn höfðu kynnst þá: Heimsstyrjöldin fyrri. Æsku Evrópu var slátrað án sýnilegs takmarks eða ávinnings og enginn var samur maður eft- ir í álfunni. Næsta áratug eftir blóðbaðið ferð- ast Halldór Laxness um Evrópu sem enn er að jafna sig eftir að líf hennar var eyðilagt en stefnir hraðbyri að næsta áfalli. Fyrst heims- kreppu en þá annarri heimsstyrjöld. Það var kannski þess vegna að þversagnir urðu tjáning 20. aldarinnar. Heimur sem einu sinni var skiljanlegur í Ijósi Guðs, síðar í ljósi mannsins, hætti að vera skiljanlegur. Bók- menntir og listir 20. aldar einkennast því af þversögnum. Á íslandi voru skáldin raunar rnörg heldur sein til að taka þversagnir sem eins konar hugmyndafræði í þjónustu sína. Nema Halldór Laxness. Stundum hvarflar að manni að þessi þrjú orð segi alla íslenska bók- menntasögu 20. aldar: Nema Halldór Laxness. Því að þetta skáld er sérstakt og sú sérstaða felst ekki síst í að vera heimsborgari, skynja hræringar í evrópskum bókmenntum og list- um á undan öðrum og ekki síst í að átta sig á því hvernig nota rná þversagnirnar til að skilja samfélagið og lífíð og jafnvel til þess að breyta því. Halldór Laxness var svo sannarlega í takt við erlenda samferðarmenn sína í skáldskap í þessu sem öðru. Frá unga aldri var Halldór heimsmaður og Evrópumaður. Það er ein þver- sögnin enn að honurn tókst í senn að vera mesti íslendingurinn og mesti heimsborgarinn í hópi íslenskra skálda. Þess vegna er engan veginn nóg að fjalla um Halldór Laxness í sam- hengi íslenskrar bókmenntasögu eingöngu eins og íslendingar hneigjast eðlilega til. Þversagnir einkenna skáldskap margra helstu rithöfunda 20. aldar í Evrópu sem voru samtíða Halldóri Laxness. Þannig beittu Jaro- slav Hasek, Bertolt Brecht, Samuel Beckett og Eugene lonesco allir þversögnum til að skilja

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.