Mímir - 01.06.1998, Page 56

Mímir - 01.06.1998, Page 56
56 samtíð sína og hafa áhrif á hana. Stundum eru notuð hugtök á borð við tvísæi (íróníu) eða margröddun um verk þessara skálda. Hvort- tveggja hugtak á vel við um Halldór Laxness einnig þó að ég hafi kosið hér að nefna þessa vinnuaðferð og hugmyndafræði skáldsins þversagnir eða „paradoxalist“ eins og hann gerir sjálfur í æsku. Á hinn bóginn voru þversagnir ekki jafn áberandi í skáldskap 19. aldar þó að þar hafi ýmsir glímt við þær, þar á meðal Lewis Carroll sem var langt á undan samtíð sinni að þessu leyti. Þegar ég les ódauðlegan texta hans í bók- um sem þó eru iðulega settar niður sem barna- bækur - en sem kunnugt er þykja barnabækur ómerkastar bóka - hef ég oft hugsað: Þannig skrifar ekki nokkur rnaður á íslandi. Nema kannski Halldór Laxness. Því að Halldór tók sig nógu alvarlega sem höfundur og skynjaði þver- sagnir samtíðar sinnar nógu vel til að beita að- ferðum sem sækja margt til orðræðu bullsins (nonsense), arfleifðar Lewis Carroll. Þversagnirnar eru því hvorki vísbending um alvöruleysi né bull. Þvert á móti hafa þeir höfundar sem hafa notað þær einna mest iðu- lega tengst stjórnmálum og einkum róttækni enda hef ég hér fært rök að því að á bak við notkun þversagna sé róttæk hugmyndafræði, andóf gegn viðurkenndum hugmyndum urn skáldskap, fasta merkingu og alveldi höfundar- ins. Það á ekki síst við um Halldór Laxness sem var fremstur í flokki róttækra íslenskra rithöf- unda á 20. öld og urn tíma einn helsti boðberi kommúnismans á íslandi. Ég nefni hér stjórnmálastarf Halldórs Lax- ness. Hjá því verður ekki komist. Skáldverk hans eru óskiljanleg nerna í ljósi róttækra stjórnmálaskoðana hans. Þó að honum væri ekkert fjær skapi en að afltenda mönnum á silf- urfati lausnir á öllum vandamálum mannlegs lífs leikur enginn efi á því að skáldskap hans er ætlað að hafa áhrif í samfélaginu. í skáldverk- um sínum tókst Halldór Laxness á við samfélag sitt og drauma mannkynsins. Þversagnir hans voru ekki flótti frá heiminum heldur leið til skilnings á samfélaginu og vanda þess. Það verður seint sagt um Halldór Laxness að hann hafi verið „fjarverandi, annar staðar, á sínum öðrum stað, í smiðju sinni“, eins og nú er sagt að sagnaskáld eigi að vera.16 Paradoxalist hans hefur vitaskuld gildi í sjálfti sér en mest er þó um vert hvernig hún mótaðist af samtíðinni og mótaði hana um leið. Á hinn bóginn gerir hin róttæka hug- myndafræði þversagnarinnar það að verkum að oft er erfitt að festa hendur á Halldóri Lax- ness. Sjálfur hefur hann gert mönnurn erfitt fyrir að draga sig í dilka með því að segja fyrst eitt, svo annað og allt stangast það á. Hann er þar samkvæmur sjálfum sér. Hver sá sem leitar að algildum og endanlegum stórasannleik í verkum Halldórs Laxness stendur uppi eins og Arnas Arnæus eftir ræðu Jóns Hreggviðssonar. Hann fær ekki svar við því sem hann spyr um en er þó einhverju nær, á einungis eftir að átta sig á hvað það er. Erindi flutt í fyrirlestraröð um Halldór Laxness á vegum Vöku-Helgafells í Norræna húsinu 17. júlí 1997 1 Halldór Laxness.íslandsklukkan. [4.útg.] Rvík 1987,127. 2 „Listin að Ijúka sögu. Minnisgreinar um skáldskap Hall- dórs Laxness.“ Tímarit Máls og menningar 48 (1987), 84-102. 3 Sjá nánar grein mína: „Listin að ljúka ekki sögu.“ Lesbók Morgunblaðsins 30. maí 1998. 4 Peter Hallberg. „Huglægni og hlutlægni í stíl Italldórs Kilj- ans Laxness." Skírnir 130 (1956), 9-50 (tilvitnun s. 35). 5 Halldór Laxness. „Persónulegar minnisgreinar um skáld- sögur og leikrit. “ Uppbaf mannúðarstefnu. Ritgerðir. Rvík 1965,67-79 (tilvitnun s. 74-75). 6 Halldór Kiljan Laxness. Brekkukotsannáll. Rvík 1957. 7 Benjamín H.J. Eiríksson í stormum sinna tíða. Hannes Hólmsteinn Gissurarson skráði eftir sögn hans sjálfs. Rvík 1996,159. 8 Halldór Laxness. Sjömeistarasagan. Rvík 1978,225-26. 9 „Innan og utan við krosshliðið. Um íróníu í Brekku- kotsannál Halldórs Laxness. “ Tímarit Máls og menningar

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.