Mímir - 01.06.1998, Page 64

Mímir - 01.06.1998, Page 64
64 innilegri en til stóð: „Það sem upphaflega var faglegur áhugi á tilveru þeirra breyttist í inni- lega og langvarandi vináttu. Vandamál þeirra skiptu mig miklu máli og oft fannst mér eins og ég þyrfti að líta eftir tveimur fjölskyldum. Sánchez fjölskyldunni auk minnar eigin.“2-í Lewis lítur ekki á sig sem höfund heldur skrásetjara þótt fyrirvari sé hafður á um það að viss höfundarþáttur er falinn í ritstýringu og niðurskipun þeirra sagna sem liggja heildar- verkinu til grundvallar. Hann vonar að þessi að- ferð miðli þó þeirn skilningi sem mannfræð- ingurinn upplifir á vettvangi í nánum sam- skiptum við viðfangsefni sitt. Við undirbúning útgáfu þessara viðtala hef ég þurrkað út spurningar mínar. Ég hef valið, endurraðað og skipað efn- inu í réttar ævisögur. Ef menn taka undir það álit Henry James að lífið einkennist bæði af óreiðu og því að halda til haga en listin snúist um mismunun og val þá er í þessum ævisögum dálítið af hvoru tveggja, list og lífi.25 Það má telja dæmigert viðhorf frásagn- arraunhyggjufólks að Lewis telur þetta ekki rýra fræðilegt gildi skýrslu sinnar og til að styrkja forsendur vísindalegs merkimiða verks- ins tekur prófessorinn það fram að hann hafi upphaflegu spólurnar tiltækar, hafi einhver áhuga á að kynna sér þær frekar.26 Mannfræði og skáldskapur Vangaveltur um mannfræðing að nafni Osc- ar Lewis koma ekki óboðnar hingað í þessa rit- gerð. Fullur hrifningar skrifar Halldór Laxness greinina „Slammbyggja“ um rannsóknir Lewis árið 1961. Rannsóknaraðferð Mr. Lewis hlýtur að vera meiren lítið nýmæliskend í mannfræði. Hún hlýtur að gera mönnum Ijós- ari nauðsyn á frekari rannsókn eftir svipuðum leiðum, þar sem ásigkomulag ólíkra sérhópa væri lagt undir smásjá vís- indanna án fyrirframgerðrar teóríu.27 Það er áhugavert að Halldór talar sérstak- lega um rannsóknaraðferð prófessorsins. Skáldið er á vel þekktum slóðum eigin hug- myndalegs kjölfestuleysis. Það kemur upp úr dúrnum, að ef rannsóknarefnið er fært úr kennisetníngunum áðuren byrjað er að kryfja það til mergjar, þá verða rnargir „réttir“ hlutir, sjálfsannaðar greinar og algild siðaboð að staðleysustöfum. Hver sem leggur við eyra getur átt á hættu að forsendur bresti sem hann hefur áður reist á niðurstöður um sálfræðileg siðfræðileg lögfræði- leg og trúarleg efni; en opinber „lífsskoðun" hans fari út í veður og vind.28 Lesendur Halldórs þekkja hér skáld sitt sem hefur gengið úr einni lífskoðuninni í aðra og nú þá að eigin sögn afneitað öllum í krafti staðreynda og heilbrigðrar skynsemi (sem er þá líklega enn ein kreddan eins og ég tel að Kristnihaldið aihjúpi að nokkru leyti). Hug- myndaleg kreddukerft eru villandýfölsun stað- reynda. Það er kunnara en frá þurfi að segja að klúbbar þeir sem hafa tögl og hagldir í nútímaríkjum eru ævinlega tilbúnir að skifta á heilbrigðri skynsemi fyrir alsherjarkenníngu sem ein- hverjir galgopar hafa fundið upp á að kalla ídeólógíur en ein- lægt er vant að kalla trúarbrögð, og tákna í rauninni afneitun staðreynda vegna sannleikans. [...] Fátæktarbæli heyra undir þær staðreyndir sem svona klúbbur á auðvelt með að kjafta sig frá með heimspeki, ekki síst ef hann veit sig sterkan til hernaðar.29 Halldór ber í kjölfarið saman skáldsögu nokkra og verk Lewis. Munurinn á Sjálfstæðu fólki og ritinu urn börn Sanchez er þó kanski enn meiri í skráníngaraðferð en rannsóknarefn- inu sjálfu. Sú bók sem fyr var nefnd leitast við að vera al- menn í samantekt á fyrirferðarmiklu efni, sett upp í listrænt form; hitt er upptaka staðreynda sem nýtísku vísindamaður færist í fáng og vinnubrögð hjá honum gera þjóðfélagsskáld- sögur að barnahjali: rannsóknarefnið er látið tala sig sjálft upp á band. Vinnubrögð mannfræðíngs og sagnahöfundar eru auk þess runnin af ólíkum rótum. Prófessorinn leitar uppi hlutinn og leggur hann fram einsog efni standa til, þar sem skáldsagnahöfundurinn er upptendraður af laungun til að betrumbæta heiminn og hagar sér einsog hann væri að flytja mál. Samt er ekki ólíklegt að verk prófessorsins sé jafn- sterkt framlag, ef ekki sterkara, sem rökstuðníngur gegn fá- tækt.30

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.