Mímir - 01.06.1998, Side 76

Mímir - 01.06.1998, Side 76
76 Þriðja erindið lokar síðan þessum upphafs- kafla með því að sama orðalagið er endurtekið en merkingunni er snúið við. Meyjarnar sem komu í upphafserindinu vilja nú fara: Meyjar fýstust á myrkvan við, alvitur ungar, örlög drýgja. (3/7-10)11 Næstu þrjú erindi segja frá því hvernig bræðurnir brugðust við er þeir komu heim og urðu þess varir að eiginkonurnar voru horfnar. í sjöunda erindi breytist svo sögusviðið er Níð- uður Njára drottinn kemur til sögunnar og sendir menn til þess að fanga Völund. Það eru því þessi sex íyrstu erindi sem skoða þarf sér- staklega til að fræðast um eiginkonurVölundar og bræðra hans. í lausamálskaflanum á undan kviðunni kemur lítið annað fram en það sem lesa má út úr kvæðinu. Sá, sem lausa málið ritar, bætir þó við efnið að því leyti að hann setur ríki Níðað- ar niður í Svíþjóð og segirVölund og þá bræð- ur vera syni Finnakonungs. Þarna eru svana- meyjarnar einnig nafngreindar og ættfærðar. Ritarinn hefur þekkt hina hefðbundnu svana- meyjasögn því hann segir: „þar vóru hjá þeim álftarhamir þeirra.“12 Þetta er eini staðurinn þar sem álftarhamir eru nefndir, þeir eru hvergi nefndir í kvæðinu sjálfu. Hér eru meyjarnar einnig sagðar vera valkyrjur og ástæða brottfarar þeirra sögð vera sú að þær flugu að vitja víga. Hér koma því frarn hugmyndir norrænna manna um valkyrj- ur eins og áður var talað um. Það er ekkert skrítið að þessi hugmynd komi fram því að meyjarnar suðrænu í Völundarkviðu líkjast á margan hátt valkyrjunum í Helgakviðunum og í Sigurdrífumálum. Þær haga sér eins að því leyti að þær velja sér sjálfar þá menn sem þær vilja og einnig líkjast þær valkyrjum að því leyti að þær geta hafið sig til flugs. Ef ályktað er sem svo að í Völundarkviðu sé urn að ræða þetta þekkta minni um svana- meyjarnar kemur það fram með nokkuð öðr- um hætti en annars staðar. í kvæðinu sjálfu er hvergi minnst á að meyjarnar hafi farið úr álft- arham.Það eina sem tengir meyjarnar við svani eru vísuorðin: Önnur var Svanhvít, svanfjaðrar dró. (2/5-6) 13 Nafnið Svanhvít tengir meyna auðvitað svönum. Vísuorðið svanfjaðrar dró tengir Svanhvíti síðan svansfjöðrum. Jón Helgason tengir orðið dró þýsku sögninni tragen, þ.e. að vera í einhverju.14 Aftur á móti tengir Ursula Dronke þetta orðasambandinu að draga yfir, hún vill bæta inn í um Slagfinn til þess að fá betri merkingu í vísuna.15 Þá merkja þessi vísu- orð það að Svanhvít hafi lagt svanavængi um Slagfinn eins og hinar meyjarnar virðast líka hafa gert við sína menn þegar þær nema að verja þá. Það kemur hvergi fram að mennirnir hafi rænt einhverju frá þeim. í írsku sögunniAislinge Óengusö (Draumur Óengus) er að finna annað afbrigði svana- meyjaminnisins. Þar segir frá elskendunum Caer og Óengus. Caer er í svanslíki annað árið en í konulíki hitt. Þegar Óengus fer niður að vatnsbakkanum og kallar á svaninn kemur hann. Þau sofa síðan sarnan í svanslíki og vefja svanavængjunum hvort utan um annað.lf’ Hér kemur fram mynd af draumkenndu ástarsam- bandi sem kemur betur heim við fyrsta erindi Völundarkviðu en sú hugmynd að til hjóna- banda bræðranna hafi verið stofnað með því að þvinga meyjarnar til samneytis við þá. Les- andi kvæðisins fær hvergi þá tilfinningu að mennirnir séu að ræna konurnar einhverju og þröngva vilja sínum upp á þær. Það er frekar að þær verji þá á sama hátt og valkyrjur verja þá menn sem þær kjósa að fylgja. Þar sem bræðurnir stela ekki hamnum frá meyjunum er ekki hægt að finna orsök brott- farar þeirra í því að þær finna hami sína. Með- an konurnar eru ánægðar í hjónabandinu lang- ar þær ekki burtu. Þær eru samt ekki eingöngu konur, þær eru svanir líka og svanir eru farfugl-

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.