Mímir - 01.06.1998, Qupperneq 79
Ljóðasamkeppni Mímis 1998
79
Síðastliðinn vetur gekkst ritnefnd Mímis íyrir
ljóðasamkeppni í samvinnu við Mál og menn-
ingu og Loftkastalann. Dómarar voru Sveinn
Yngvi Egilsson, bókmenntafræðingur og skáld,
Sigþrúður Gunnarsdóttir, MA-nemi, og Védís
Skarphéðinsdóttir, íslenskufræðingur (f.h. Máls
og menningar). Þátttaka var með ágætum en þó
var talsvert um það að nemendur sendu inn fleiri
en eitt ljóð, já og fleiri en tvö... Ritnefnd Mímis
vill hér með þakka öllum þeim sem hlut áttu að
máli, þ.e.a.s. þátttakendum, dómurum, Máli og
menningu og Loftkastalanum.
Verðlaun voru ekki af verri endanum og má
nefna að sigurvegarinn fékk heildarsafn ljóða
Tómasar Guðmundssonar en nýverið kom út hjá
Máli og menningu 2. útgáfa þessarar glæsilegu
bókar. Ritnefnd valdi síðan ljóðakverið Gullregn,
sem hefur að geyma ljóð eftir konur en það þótti
viðeigandi þar sem þátttakendur voru að þessu
sinni allir karlkyns.
Úrslitin voru kunngerð í apríl á aðalfundi fé-
lagsins í húsakynnum Stúdentakjallarans. Sig-
þrúður Gunnarsdóttir var málsvari dómnefndar
og tilkynnti úrslitin. Dómnefnd kvað tvö ljóð
bera af að þessu sinni og því var ákveðið að veita
eingöngu verðlaun fyrir fyrsta og annað sætið en
þau voru sem hér segir:
1. verðlaun; heildarsafn ljóða Tómasar Guð-
mundssonar og gjafabréf fyrir tvo í Loftkastal-
ann, hlaut Hafþór Ragnarsson fyrir ljóðið
Smíðavöllur.
2. verðlaun; ljóðakverið Gullregn, úr ástarljóð-
um íslenskra kvenna, og gjafabréf fyrir tvo í Loft-
kastlann hlaut Hafþór Ragnarsson fyrir Ijóðið
Hvalrekl.
Að lokum má geta þess að Hafþór Ragnars-
son hefur nú gefið út sína fyrstu ljóðabók, Orðin
tóm. Bókin hefur að geyma yfir þrjátíu ljóð og
þar má meðal annars frnna verðlaunaljóðin tvö.
Ritnefnd óskar vinningshafa til hamingju með
sigurinn og nýju bókina.
Hafþór Ragnarsson
Smíðavöllur
Einn veðurdag hættu ævintýrin að vera bara
eitthvað í bókum.
Smávaxnir bleikir indjánar
æddu gólandi um mannlaust þorpið
og eirðu engu uppistandandi
í sæluvímu sem aðeins skemmdarvargar þekkja.
Líklega voru íbúarnir í mat hjá mömmu sinni
meðan þorpið þeirra var eyðilagt i taumlausri nautn.
Indjánarnir voru langt komnir með
að kveikja í húsi höföingjans,
með sænskum þriggja stjörnu eldspýtum
(af flmm mögulegum),
þegar hann stóð allt í einu sigurviss á bakvið þá
með þung brýndasta pabba í heimi í sínu liði
og þó þá hafl aldrei borið eins hratt yflr
varð siminn á undan þeim heim.
Næstu daga unnu indjánarnir að uppbyggingu
dreyrrauðir og með skýjaða samvisku.
Hvalreki
Brjótið þið
bárur bláan hval
á sandi.