Mímir - 01.06.1998, Blaðsíða 82
82
tíð í samvinnu við sagnfræðinema og bókmennta-
fræðinema. Gerðist þetta föstudaginn 27. febrúar í
Þórshöll í Brautarholti. Talið er að á fimmta tug ís-
lenskunema hafl mætt og þykir það þó nokkuð all-
verulega góð mæting (þess má geta að auk þessa
fjölda íslenskunema mætti smá hópur sagnfræði-, bók-
menntafræði- og heimspekinema).
Hljómsveitin Skýjum ofar lék fyrir dansi og hélt
mannskapnum í miklu stuði. Veislustjóri var Halldór
Guðmundsson, útgáfustjóri Máls og menningar, og
heiðursgestur okkar íslenskunema var Vésteinn Óla-
son sem skemmti gestum konunglega með skemmti-
sögum.Vítanefnd var skipuð þeim Ásdísi Arnalds, Lauf-
eyju Leifsdóttur og Arnóri Haukssyni og gáfu þau upp
afrakstur þrotlausrar vinnu sinnar og víttu menn og
konur á báða bóga. Þótti öllum (eða að minnsta kosti
flestum) Þorrablót 1998 vel til takast og mæla með að
slíkur atburður verði endurtekinn að ári.
Skal nú vikið að hinni árlegu sumarbústaðarferð
sem farin var nú fyrsta árið í röð. Ritari Mímis og
blaðafulltrúi svo og óháður blaðamaður Ratatosks var
á staðnum og sá um að rita ferðasögu sem brot birtist
úr í 6. tölublaði jiessa árgangs af Ratatoski. Skal stikfað
hér á risastóru úr sögu þeirri:
Já, var farin ofangreind ferð laugardaginn 27.
mars.Var þar margt til gamans gert. Lagt var af stað frá
Árnagarði í langferðabíl. Forseti rúturáðs Mímis, ung-
frú María Sæmundsdóttir, sá um aksturinn. Ferðalang-
ar voru nítján fallegar persónur sem sækja nám stíft í
Árnagarði, nema þrjár konur. Keyrt var í austurátt en
bústaðurinn var (og er sjálfsagt enn) rétt austan við
Árnagarð, nánar tiltekið rétt hjá Flúðum. Nátthagi heit-
ir húsið og ber nafn með rentu. Sumarbústaðarferðar-
farar þeir sem í sumarbústaðarferðinni voru, voru
komnir í sumarbústað þann er ferðinni var heitið í um
klukkan einhverntíma eftir hádegi. Gerðu menn sér
lítið fyrir, fyrir utan tvær, að fara GANGANDI upp á
fjall sem kennt er við fell, nánar tiltekið Miðfell. Hinn
fríði flokkur fótfrárra manna og kvenna fór sem sagt
upp á fjallið og fór svo niður af því stuttu seinna. Fjall-
gönguferð þessi var undir traustri handleiðslu sérlegs
fulltrúa fararstjóraráðs Mímis, Elínar Unu. Stuttu síðar
var farin skoðunarferð um Flúðir og heimamenn skoð-
aðir í návígi. Var gert rækilegt stans á bæ einum þar
sem sérlegur fulltrúi fararstjóraráðs Mímis (Elín Una)
virðist uppalinn. Voru þar étnar og drukknar veigar að
hætti heimamanna; kaffi-eitthvaðtorkennilegtogrót-
sterkt-pönnukökur. Svo var keyrt (þar sem forseti
rútubílaráðs sat enn við stýrið) aftur í Nátthaga þar
sem grillnefnd (3 embætti) hófst þegar handa við
geggjaða grillun á polsum. Á þeim tímapunkti var orð-
ið afar heitt í kolunum og uppfrá því leystist ferðin
upp í almenna skemmtun og stuð og drykkjunefnd
tók fljótlega við. Er það mat manna að drykkjunefnd
hafl staðið sig einna best af þeim nefndum sem stóðu
að ferðinni. Undir kröftugum gítarleik hirðgítarleikara
sungu ferðalangar sig inn í hjörtu hver annars og voru
menn svo söngglaðir að gítargutti (mjög nýskipað
embætti) þurfti um tíma að hlaupa í skarðið fyrir hirð-
gítarleikara. Skemmtinefnd stóð fyrir skemmtikvöldi
þar sem sumarbústaðarferðarförum gafst tækifæri á að
skemmta samferðamönnum sínum. Komu fram hokkr-
ir kraptar sem vöktu niikla kátínu hjá hópnum og
þykja menn hafa tvíeflst í drykkjunni uppfrá því. Hélt
gleðin áfram fram eftir nóttu og upp undir morgun.
Ekki má láta hjá líða að geta þess að heitur pottur
(sem sumum fannst of heitur, en öðrum ekki nógu
heitur eða með öðrum orðum full kaldur) lá upp að
bústaðnum og á tímabili er talið að allir ferðalangar
hafi setið pottinn (utan einn). Fegurðarráð stóð fyrir
fegurðarsamkeppni og var íslenskuneminn fyiTver-
andi, Sigríður Harpa, kjörin Miss Hot Pot 98 (Því má
bæta við þetta að í kjölfar titilsins hefur Sigríður ný-
lega flutt út til Englands til að gera garðinn frægan. Er
það von stjórnarmeðlima að hún snúi heim með fleiri
Hot Pot titla). Svo á sunnudagsmorgni var vaknað
óvenju snemma þar sem þrifaráð sá um sitt og svo ók
rúturáð okkur heim (að Árnagarði). Þar með líkur
sögu þessari.“
Aðalfundur Mímis var haldinn í Stúdentakjallaran-
um |)ann 17.apríl og mættu jxmgað 16 Mímisliðar auk
nokkurra áheyrenda. Margt var gert á fundinum. Ekki
verður rakið hér nákvæmlega hvað rætt var á þeim
fundi en er áhugasömum bent á að nálgast fundargerð
hjá ritara Mímis.
Síðasta verk stjórnar var svo vorferð sem farið var
í að loknum prófum þann 16. maí.Að þessu sinni var
farið á Reykjanes og var fararstjóri Kristján Árnason.
Þótti ferðin ágæt en ekki til frásögu færandi.
í byrjun vetrar var Ijóst að íslenskunemar myndu
missa hið sérsniðna drykkjuhús sitt,Torfbæ. Hamlaði
það mjög skemmtistarfsemi þetta árið og er það
ástæða þess að spilakvöld í vetur voru svo fá sem þyk-
ir. Er útséð um það að Mímir fái aftur þetta hús í sinn
hóp svo að lengi vel var útlitið svart. En á vordögum
barst orðrómur um að bráðlega gæfist nemendafélög-
um í Háskólanum kostur á aðstöðu á annari hæð í húsi
því sem lengi var kennt við Jón Loftsson og hýsir nú
stórmarkaðinn Nóatún. Hefur joví birt yfír framtíðinni
og gæti farið svo að á næsta vetri stórbatni skemmt-
anahald hjá Mími. En sjáum til!
Skal nú settur niður punktur.