Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Side 12
EGGERT ÞORBJARNARSON:
Mesta verkfalli í sögu
landsins lokið
í réttar sex vikur var háð ein hin
örlagaríkasta glíma milli aðalstétta
þjóðfélagsins. Henni lauk með því, að
yfirstéttin féll á eigin bragði.
Þetta verkfall var svo viðamikið,
risti svo djúpt og reisti svo mörg við-
fangsefni, að því verða engin við-
hlítandi skil gerð í stuttri grein. Hér
verður því aðeins stiklað á stóru. —
Árið 1947 urðu þáttaskil í kjaramál-
um verkalýðsins á íslandi. Yfirstéttin
sveik nýsköpunarstefnuna, gekk
bandarísku auðvaldi opinberlega á
hönd og sameinaði krafta sína til
varanlegra árása á lífskjör verkalýðs-
ins, en þau höfðu náð hámarki 1947.
Allir flokkar auðvaldsins sameinuðust
í afturhaldssamri ríkisstjórn. Árið eft-
ir tókst þeim að brjóta undir sig Al-
þýðusambandið og nokkru síðar Full-
trúaráð verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík. í kjölfarið sigldu árásirnar á
lífskjörin, og harðnandi andstaða gegn
allri kjarabaráttu verkalýðsins. Gíf-
urlegar tolla- og skattabyrðar voru
lagðar á alþýðu manna. Kaup verka-
fólks var bundið með lögum. Tvenn-
ar gengislækannir, sú síðari (1950)
mest allra í sögu landsins, juku dýr-
tíðina um allan helming, auk ráð-
stafana eins og bátagjaldeyris o. fl.
Kaup- og kjarabarátta verkalýðsfé-
Iaganna náði ekki að jafna metin,
ekki heldur hið harða og langa des-
emberverkfall 1952.
Á 24. þingi Alþýðusambandsins síð-
astliðið haust var það einróma álit
meir en 300 fulltrúa, að lífskjörin
hefðu rýrnað svo mjög, að verkalýðs-
samtökin yrðu að gera gangskör að
því að bæta þau. Sú samhljóða sam-
þykkt, sem þar var gerð um nauðsyn
an gegn kaupræningjunum í bæjarstjórn, löggjafarþingi og ríkisstjórnum
til að svipta þá völdum og slá þessi kaupránsvopn úr höndum þeirra.
Þess vegna er það eitt af meginverkefnunum að efla einingu verkafólks um
kjaramálin innan verkalýðsfélaganna og fullkomna þá einingu með víðtækum
kosningasamtökum verkafólks og alþýðu um að hnekkja valdi auðklíkn-
anna í opinberu lífi, bæjarstjórnum, þingi og ríkisstjórn, en setja þar í
þeirra stað fulltrúa verkalýðs og alþýðlegra hagsmuna.
Þessa leið hefir síðasta þing A.S.Í. markað og þá leið ber að halda.
50
VINNAN og verkalýÖurinn