Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Qupperneq 36

Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Qupperneq 36
Gegn stríði og kjamorkuvopnum 18. og 19. jan. s.l. var í Vínarborg fundur framkvæmdanefndar Heims- friðarráðsins. Þessi fundur fjallaði einvörðungu um friðarmálin og baráttuna gegn ófriðarhættunni. Fundurinn samþykkti ávarp til allra þjóða heims og hvatti þær til að taka höndum saman gegn styrjaldaröflunum. Ávarpið hljóðar svo: Ýmsar ríkisstjórnir undirbúa nú kjarnorkustyrjöld. Þær leitast við að sannfæra almenning um að hún sé óhjákvæmileg. Beiting kjarnorkuvopna mundi leiða af sér allsherjar eyðingu í styrjöld. Vér lýsum yfir því, að hver sú ríkisstjórn, sem byrjar kjarnorkustríð, hlýtur að fyrirgera tausti þjóðar sinnar og kalla yfir sig fordæmingu allra annarra þjóða. Vér munum nú og framvegis standa í gegn þeim sem undirbúa kjarn- orkustríð. Vér kref jumst þess að birgðir kjarnorkuvopna í öllum löndum verði eyðilagðar og framleiðsla þeirra nú þegar stöðvuð. 11—14. marz s.l. var aftur fundur framkvæmdaráðs Heimsfriðarhreyfing- arinnar, til að fylgja frekar eftir áður gerðri samþykkt og skipuleggja fram- hald alþjóðlegrar söfnunar undirskrifta að ávarpinu. Höfðu þá þegar safnazt 150 milljónir undirskrifta. — Þegar síðast fréttist höfðu safnazt undir ávarpið 500 milljónir undirskrifta — og þó höfðu ekki þá borizt skýrslur um söfnun- ina frá Sovétríkjunum og Indlandi, auk nokkurra annarra landa. Marzfundurinn í Vín starfaði einnig að undirbúningi alþjóðaþings friðar- hreyfingarinnar sem haldið skal í Helsinki 22. maí n.k. — Þennan Vínarfund sat Kristinn E. Andrésson sem fulltrúi íslands. Friðarhreyfingin hér á landi hefir nú góðu heilli ákveðið að beita sér fyrir undirskriftasöfnun að friðarávarpinu meðal íslenzku þjóðarinnar. Þessu fagna allir góðir íslendingar því þótt segja megi að allt mannkyn eigi líf sitt og velferð undir því að friður haldist, er augljóst, að fáar þjóðir eru í slíkum voða sem vér íslendingar, ef kjarnorkustyrjöld brýzt út. Þessi mikla hætta stafar af hinum amersku vígstöðvum hér. 74 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.