Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Page 42

Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Page 42
1. maí 1955. Kröfugangan fer niður Bankastræti. samningsvilja í herbúðum andstæð- inganna. Vígstaða ofstækismannanna hafði haggast. Áætlun þeirra þótti að lokum of áhættusöm. En þeir gáfust ekki upp. Fram á síðustu mínútu samningsviðræðnanna reyndu þeir að egna til árekstra í því skyni að eyði- leggja möguleika á samningum. Síð- ustu dagana var andrúmsloftið mett- að af tilraunum þeirra til árekstra og samningaslita. Og á öðrum degi áður en samningar tókust, var gerð markviss tilraun í þessu skyni með árás lögreglusveitar á verkfallsverði og handtöku þeirra. Vegna framferð- is hinnar ofstækisfullu klíku héngu möguleikarnir á samningum á blá- þræði. En því meiri tilraunir, sem gerðar voru til að eyðileggja samn- inga, því meiri stillingu og stjórn- list sýndi forysta verkfallsins Skýrt dæmi þess, var sú ákvörðun hennar, að hefja ekki þegar í stað algert verk- fall í frystihúsunum, heldur að hálfu leyti. Þar kom að lokum, að atvinnurek- endur og ríkisstjórn urðu að láta und- an síga og þann 28 apríl undirrituðu samninganefndirnar nýjan kaup- og kjarasamning. í honum fólst 10—11% kauphækk- un, lenging orlofs úr 15 dögum í 18, 4 % af kaupi í atvinnuleysistrygginga- sjóð og lagfæringar á ýmsum kjara- atriðum. Alls námu kjarabæturnar til verkalýðsins 16% auk fl. kjarabóta. Mesta verkfalli íslenzkrar verklýðs- sögu var lokið með ótvíræðum og miklum sigri verklýðssamtakanna. Verkalýðurinn kom út- úr þessu verkfalli ekki aðeins með mikilvæga hagsmunasigra, þótt þeir uppfylltu ekki ýtrustu vonir, heldur þróttmeiri en nokkru sinni fyrr. 80 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.