Bergmál - 01.12.1952, Síða 23
1952 ------------------------
stúlkan sá móður sína sagði hún:
„Það var ágætt, að þú komst,
sjáðu okkur, við elskum hvort
annað — við höfum bundizt
heitum.“ „Hvað segir hún, lækn-
ir, hvað er hún að segja?“ Ég
varð öskugrár. „Hún er með ó-
ráði,“ segi ég, „vegna hitans.“
En hún; „Hss, uss; rétt áðan
sögðuð þér mér allt, allt annað
og þér tókuð hringinn minn.
Hvers vegna eruð þér með láta-
læti? Móðir mín er góð — hún
mun fyrirgefa — hún skilur —
og ég er að deyja ... Ég þarf
ekki að segja ósatt, réttið mér
höndina.“ Ég stökk á fætur og
þaut út úr herberginu. Gamla
konan renndi auðvitað grun í,
hvað undir bjó.“
„Ég skal nú ekki þreyta þig
með að orðlengja þetta frekar
og mér er satt að segja ekki sárs-
aukalaust að rifja þetta upp.
Sjúklingurinn minn skildi við
daginn eftir. Megi drottinn veita
henni ró!“ sagði læknirinn hratt
og stundi um leið. „Áður en hún
dó, bað hún fjölskyldu sína að
fara burt úr herberginu og
skilja sig eina eftir hjá mér.“
„Fyrirgefið mér,“ sagði hún, „ef
til vill hefi ég breytt illa gagn-
vart yður ... veikindin ... en
trúið mér, ég hefi engan elskað
eins heitt og yður ... gleymið
----------------- Bergmál
mér ekki ... glatið ekki hringn-
um mínum.“ Læknirinn sneri
sér undan; ég tók í hönd hans.
„Jæja,“ sagði hann, „við skul-
um tala um eitthvað annað eða
máske vildir þú spila Kasino
og leggja lítið í borð? Mönnum
eins og mér fer illa að verða fyr-
ir sterkum geðshræringum. Ég
hefi aðeins eitt til að hugsa um:
Halda krökkunum mínum frá
því að orga og konunni frá því
að skammast. Þú sérð, að ég
hefi, síðan þetta var, gengið í
heilagt hjónaband, eins og þeir
segja ... Ég valdi kaupmanns-
dóttur — með sjö þúsund í
mund. Hún heitir Akkalína; það
hljómar ágætlega við hliðina á
Triffon. Hún er skapstygg kona,
það skal ég segja þér, en sem
betur fer, sefur hún mestan dag-
inn ... Jæja, hvað segirðu um
eina Kasino?“
Við tókum til við spilin og
lögðum aura í borð. Triffon Iv-
anich vann af mér tvær og hálfa
rúblu, fór heim seint og síðar-
meir, og var hinn áhægðasti
með útkomuna.
í hjarta sínu er hin léttúðugasta
kona alltaf trygglynd. Og í hjarta
sínu er hinn tryggasti karlmaður allt-
af ótrúr.
21