Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 8

Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 8
Desember B E R G M Á L-------------------- brjósti, hvorki fyrr eða síðar. Allt breyttist og ég fann ekki til neins ótta eða kvíða, hætti að óttast það sem var og það sem væri í vændum, og gleymdi kvíðanum fyrir því sem fram- tíðin bæri ef til vill í skauti sér. Ég var hamingjusöm í fyrsta skipti á ævinni, og ég hafði þá lifað nógu lengi til þess að vita hvað það var að þrá það, þrá þessa tilfinningu, sem maður getur aðeins fundið í návist karl- manns. Þegar ég leit á hann fann ég að ég mundi geta dáið fyrir hann, ef hann færi fram á það, enda þótt ég samtímis finndi það að ég hafði aldrei haft eins mikla löngun til þess að lifa og vera hamingjusöm, sterk og frjáls. Munurinn var aðeins sá að nú var ég ekki hrædd við dauðann, og þótt ég hafi ekki skilið það eins vel þá og nú, þá veit ég það með vissu, að þær tilfinningar sem ég bar í brjósti til þessa manns og ber til hans enn í dag, er það sem kallað er ást. Ég hélt þá að ekk- ert það væri til sem í raun og veru væri ást, en eftir það kvöld vissi ég að hún var til. Nú veit ég hvað það er að elska, að glata að nokkru leyti sjálfum sér, að breyta um lífsskoðun.“ Hún leit öðru hverju á mig eins og til að vita hvort ég fylgd- ist með því sem hún var að segja. Ég varð gripin undarlegu máttleysi og eitt andartak fékk ég sterka löngun til að taka um hönd hennar, eins og hinn mað- urinn hafði gert, strjúka hana og veita henni styrk. En ég hreyfði mig ekki og sagði ekki neitt. Skyndilega rétti hún fram höndina og bretti upp vinstri jakkaerminni minni, til þess að líta á úrið mitt. Það var nú lið- inn hálftími, klukkan var kortér yfir tíu. Hún hló stuttum hlátri, næstum eins og hún væri sigri hrósandi yfir einhverju. „Hann kemur,“ sagði hún. „Ég finn það. Hugur minn finn- ur það, að hann kemur.“ „En hvernig má það vera ef hann veit ekki að þér eruð hérna og bíðið eftir honum,“ sagði ég. „Ef til vill er hann langt í burtu héðan.“ „Engar fjarlægðir eru til á milli þeirra sem elskast,“ sagði hún alvarlega. „Og.hann getur ekki hafa gleymt. Hann sat þarna sem þér sitjið og ég man það að hann hallaði sér áfram og strauk yfir hár mitt, og þegar ég tók um hönd hans og kyssti á hana, þá stóð hann á fætur og gekk til mín og kyssti mig. Hann 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.