Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 39

Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 39
SKRÍTLUSÍÐA ítölsku tenorsöngvararnir Tito Schipa og Beniamino Gigli eru mjög góðir vinir, en þrátt fyrir það láta þeir ekkert tækifæri ónotað til að glettast hvor við annan. Fyrir nokkru siðan varð Gigli að leggjast á spítala og var hann skorinn upp. Strax daginn eftir kom Schipa til spítalans, til að spyrja eftir hvernig vini hans liði. Þá sagði læknirinn. „Uppskurðurinn gekk alveg prýðilega, en þegar ég bað herra Gigli að telja upp að hundrað, á meðan hann var undir svæfin^u, þá taldi hann einn tveir þrír, tuttugu og fjórir, fimmtíu og sjö. Og ég er sannast að segja mjög undrandi yfir því, að þetta endurtók hann aftur og aftur.“ „Það er ekki svo mjög undarlcgt," sagði Schipa. „Vissuð þér það ekki læknir að hann hefur aldrei getað lært neitt, eða sagt neitt á leiksviði án þess að hafa hvíslara." ★ Ameríski grínleikarinn Jack Benny var einu sinni í leigubíl. Þegar bíl- stjórinn var kominn að þeim stað þar sem hann átti að stoppa varð honum ljóst, að hemlarnir voru ekki í lagi. „Hvað er þetta,“ hrópaði Jack Benny. „Hvers vegna stöðvið þér ekki bílinn?" „Ég get ekki stöðvað bílinn," svar- aði bílstjórinn, og bíllinn þaut áfram með sama hraða. „Ég er hræddur um að hemlarnir séu ónýtir." „Gjörið svo vel og stöðvið að minnsta kosti gjaldmælirinn undireins," hróp- aði Jack. Þegar La Guardia var borgarstjóri yfir New York árið 1934, þá ávarpaði hann einu sinni samkomu daufdumbra barna, en með borgarstjóranum var maður, sem túlkaði á fingramáli það sem borgarstjórinn sagði. La Guardia hóf ræðu sína á þessa leið: „Það gleð- ur mig mjög mikið að fá að ávarna ykkur, því að ég veit að þið skiljið það sem ég segi, enda þótt þið heyrið það ekki. Ég er orðinn langþreyttur á að ávarpa fólk sem heyrir hvað ég segi, en skilur ekkert." ★ Gríski herforinginn Metaxas var einu sinni á eftirlitsferð og kom í eina af herstöðvunum, og bauð foringinn þar honum að skoða nýjan flugbát, sem lítt hafði verið reyndur. Hers- höfðinginn þáði það með þökkum, og sagðist vilja fljúga flugvélinni sjálfur. Allt gekk vel þangað til að foring- inn veitti því athygli, að hershöfðing- inn ætlaði að fara að setjast á flug- völl. „Afsakið, herra yfirhershöfðingi^ en ég held að það væri betra að setjast á sjóinn, því að þetta er flugbátur." „Auðvitað, auðvitað, hvað er ég að hugsa," sagði herforinginn sem oft var dálítið viðutan. Hann sneri nú við og lenti á sjónum, þar skammt frá. Síðan sneri hann sér að foringj- anum, og sagði. „Ég þakka yður fyrir að þér bentuð mér á þessi hræðilegu mistök, sem mér höfðu næstum orðið á. Ég mun ekki gleyma því hve hæversk- lega þér bentuð mér á mistök mín.“ Því næst sté hann út úr flugvélinni og beint í sjóinn. 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.