Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 44

Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 44
Desember B E R G M Á L væri að klifra þarna niður vegna brattans, þá fannst henni samt á einhvern hátt, að það væri hættuminna heldur en að bíða ein- angruð þarna uppi við hellismunnann. Bíðandi eftir einhverju, sem hún vissi ekki hvað var. Hún fór mjög hljóðlega og komst brátt niður í fjöruna, en þar íaldi hún sig í skugga nokkurra stórra kletta, á meðan hún var að ná andanum og reyna að jafna sig. Þrir eða fjórir menn voru nú komnir upp úr bátnum og upp í fjöruna, og stóðu þeir hringinn í kringum doktor Faber. Hún heyrði óminn af samtali þeirra, en gat ekki greint orðaskil. Hún fór að iæra sig hægt og hægt í áttina nær þeim, eins gætilega og hljóð- lega og henni var unnt. Marrið í sandinum undan fótum hennar rann saman við hljóð- látt skvampið í öldunum við fjöruborðið, og loks tókst henni að komast svo nærri þeim, að hún þekkti rödd doktors Faber úr hinum. Henni til mikillar undrunar þá talaði hann Þýzku. Hún heyrði einn af aðkomumönnum svara á sama máli, en þó bentu áherzlur hans til þess að það væri ekki móðurmál hans. í íyrstu kom Christine þetta svo á óvart, að hún skildi ekki það sem þeir voru að segja. En hún kunni þýzku mjög vel, og er hún hafði náð sér eftir undrunina gat hún heyrt meiri hluta þess, sem þeir voru að segja, enda þótt allt sem hún heyrði væri svo óvænt, að hún átti erfitt með að trúa því, að hún skildi þá rétt, Það var augljóst að þessir aðkomumenn voru ekki lögreglumenn. Jainaugljóst var það, að doktor Faber hafði átt von á þeim og stóð á einhvern hátt í sambandi við þá. Hið fyrsta, sem henni flaug í hug var að hlaupa á brott, til þess að komast sem lengst frá þeim og mögulegt var. Og til þess að komast sem lengst áður en doktor Faber kæmist að því að hún væri ekki lengur uppi í hellinum, þar sem hann hafði skilið við hana. En í .sömu andrá og hún bjó sig til að læðast af stað sá hún að doktor Faber benti upp að hellinum, og hikaði hún því við. Óstjórn- leg, óviðráðanleg skelfing greip hana, því að hún heyrði greini- lega að hann sagði: „Hann er þarna uppi í einum hellinum. Mér tókst að binda hann, en honum tókst á einhvern hátt að losa hendur sínar.“ Það sem 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.