Bergmál - 01.12.1955, Qupperneq 25
B'e r g m A l
1 9 5 5 ------------------------
fann hún nýjan Lucien, sem
strax sagði, að honum litist mjög
vel á hana og fór þegar að gera
hosur sínar grænar. „Ó, frú mín
góð, réttið mér hönd yðar og
lofið mér að strjúka hana, nei,
farið ekki frá mér strax.“
Og þannig atvikaðist það, að
Madame Corambeau varð ham-
ingjusömust allra kvenna, og
vakti jafnvel öfund og gremju
kynsystra sinna, sem voru undr-
andi sökum hinnar óumræði-
legu hamingju, sem lýsti frá
henni, og þó var eiginmaður
hennar svo mjög ringlaður, eða
öllu heldur snarvitlaus, að
læknavísindin stóðu ráðþrota
gagnvart því. Madame Coram-
beau fannst það unaðslegt að
eignast á hverjum morgni nýj-
an elskhuga og leyfa honum að
draga sig á tálar, en þó jafn-
framt að vera manni sínum trú,
og síðast en ekki sízt fannst
henni unun að því að rífa í
sundur bréf frá ástmeyjum hans,
sem kvörtuðu sáran yfir óskilj-
anlegri þögn hans og afskipta-
leysi.
Germaine var í sjöunda himni.
Á hverjum morgni bað Lucien
hana um upplýsingar um sjálf-
an sig, hver hann væri og hver
þjóðfélagsstaða hans væri, en
gaf sig því næst á vald tilfinn-
ingum sínum og ásthrifningu.
Þau lifðu í sínum einkaheimi,
aðeins hvort fyrir annað.
Líf þeirra leið áfram áhyggju-
laust, eins og kristalstær fjalla-
lækur um langa hríð, eða fram
að hinum örlagaríka morgni,
þegar Germaine, eins og venju-
lega bankaði að dyrum á her-
bergi manns síns og heyrði að
hann sagði: „Kom inn,“ með
þreytulegri, áhugalausri röddu,
sem hún vart þekkti nú orðið.
Samt sem áður gekk hún inn
í herbergið. Engin svipbrigði
sáust á Lucien, hann muldraði
aðeins:
„Nú, ert það þú. Hvað er um
að vera, get ég ekki fengið að
vera í friði.“ Og Germaine
stamaði snöktandi, hálf-mátt-
laus í hnjáliðunum, eins og væri
að líða yfir hana:
„Hamingjan hjálpi mér. Ham-
ingjan hjálpi mér. Þetta er
hræðilegt. Þú ert þá orðinn
frískur.“
í samkvæmi einu var verið að ræða
um hraða á ýmsum hlutum og meðal
annars var farið að tala um hraða
Ijóssins. Þá sagði maður einn þekktur,
sem var í samkvæminu. „Hið eina sem
ég man um hraða Ijóssins, er það að
það kemur alltaf of snemma á morgn-
ana.
— 23 —