Bergmál - 01.12.1955, Síða 28
Bergmál ------------------------- Desember
ódýrari heldur en vandað og
margflókið vélakerfi, sem í slík-
an mann þyrfti, enda samkeppni
milli miðlungslistamanna mjög
mikil.
Þessi maður hét Gregg Warr-
en, hann var leikari og hafði eitt
sinn gert sér vonir um að verða
stjarna í kvikmyndaheiminum,
en listagvðian ekki verið hon-
um hliðhollari en það, að hann
varð nú að sætta sig við molana
af borðum hennar. Hæfileikum
hans bauðst ekki annað við-
fangsefni en það að standa þarna
í glugganum kvöld eftir kvöld
með örlitlum hvíldum á klukku-
tíma fresti. Hann var sem sagt
ekki annað en vélræn „fígúra“
í glugganum, sem stillt var upp
í því augnamiði að tæla vegfar-
endur inn í klúbbinn.
Hann var orðinn þjálfaður í
því að stara út á götuna án þess
að hreyfa augun eða yfirleitt
láta nokkur geðbrigði í ljósi,
hvað sem fyrir augun bar. Eng-
inn gat því sagt um hvað bærð-
ist í brjósti hans, hvað hann
hugsaði er hann sá velvaxinn,
myndarlegan, ungan mann hraða
sér inn í gegnum klúbbdyrnar
og halda þaðan beina leið að
leiktjaldabaki á þann hátt að
auðséð var að maðurinn var
þarna vel kunnugur.
m //
Þessi maður hét Johnny Kelly.
Göngulag hans, framkoma og
fas benti allt til þess að hann
ætti að vera einkennisklæddur,
enda var Johnny það að jafnaði
þótt hann væri það ekki í þetta
skiptið, því að hann var lög-
regluþjónn. Þegar hann gekk inn
um dyrnar á næturklúbbnum í
þetta sinn voru aðeins tvær
klukkustundir þar til hann átti
að vera mættur til vinnu sinnar,
því að hann átti að vera á vakt
frá miðnætti til klukkan átta um
morguninn og hafa eftirlit
með óværum svefni stórborgar-
innar.
En í þessu andartaki hafði
Johnny allt annað að hugsa,
hann kom þarna til að hitta
Sally Connors, sem var aðal
dansstjarna klúbbsins. Sally var
aðeins tuttugu og þriggja ára að
aldri og þó benti blikan í aug-
um hennar til þess að hún hefði
þegar hlotið meiri lífsrevnslu
en aldur hennar sagði til um.
En hvað sem því leið var fegurð
hennar ósnortin, fersk og að-
laðandi, svo að það var ekki að
ástæðulaustu að hún var oft
nefnd „Þokkagyðjan".
Allt starfsfólkið í klúbbnum
vissi það að Johnny og Sally
voru ástfangin hvort af öðru.
Sumt af fólkinu hafði ánægju
— 26