Bergmál - 01.12.1955, Page 30

Bergmál - 01.12.1955, Page 30
B E R G M Á L Desember Flamingó-klúbburinn. þér, þá með Gregg. Við skulum kveðjast Johnny, strax.“ Langa stund stóð hann og starði á hana en því næst tók hann hana í faðm sér. Ástríðu- þrunginn ekki brauzt nú frá vör- um hennar eins og hún gæti ekki lengur haldið tilfinningum sínum í skefjum, en hvorugt þeirra sagði orð, hvorugt gat huggað hitt. Skyndilega sleit Johnny sig frá henni og hraðaði sér fram á ganginn. Hann gekk hratt niður eftir ganginum án þess að líta við eitt andartak, enda þótt Sally biði í dyrunum og vonaði að hann myndi gera það. Johnny hraðaði sér eftir mannlausum götunum. Hraðaði sér niður litla, þrönga götu og komst loks heim að húsinu, sem hann leigði í, enda þótt þetta hús væri ekki glæsilegt og íbúð- in ekki mjög skemmtileg var hún þó betri en flestar þær íbúðir, sem ungir lögregluþjón- ar urðu að sætta sig við. Er hann gekk upp stigana þá sagði hann við sjálfan sig, beisklega, að það væri eingöngu því að þakka hvað Kathy hefði gott starf, sem væri betur launað en hans starf, að hann gæti leyft sér tiltölu- lega þægilega íbúð, og önnur lífsþægindi meiri en starfs- bræður hans. Og einmitt vegna þessa hataði hann sjálfan sig og þó kannske mest vegna þess, að hann var ekki heill gagnvart henni. Kona hans var úti, tengda- móðir hans tók undir kveðju hans með þessari hrjúfu rödd, sem skapazt af endalausum áhyggjum, umkvörtunum og 28 —

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.