Bergmál - 01.12.1955, Side 59

Bergmál - 01.12.1955, Side 59
B ERGMÁL 1 9 5 5 ----------------------- sagði Lizzie með sinni titrandi gamalkonurödd.“ „Það er hægt að leiða mann að vatninu en ekki til að drekka það,“ sagði Sara spekingslega og leit yfir hópinn. „Eitthvað verður að gera,“ stamaði Rakel og strauk íhug- andi skorpið nefið. „Við finnum sjálfsagt eitthvað ráð,“ sagði Sara íbyggin. „Við skulum kenna henni að láta það vera að koma með sitt and- styggilega nýtízku dót hingað þegar við viljum helzt vera lausar við það.“ Reiðin gaus upp í henni á ný og hún fussaði. „Ætli það hefði ekki a. m. k. átt að spyrja okkur fyrst, ætli U Nú vildi hin aldurhnigna Nancy láta álit sitt í ljósi. Enginn skildi hvað hún sagði því að orð- in urðu að einhvers konar skruðningi lengst niðri í henni. En Sara kinkaði kolli til hennar og sagði: „Já, Nancy. Það er á- reiðanlegt.“ Sumar konurnar kölluðu hana ömmu, hún var svo gömul — sjálfsagt yfir hundrað ára. Það hafði komið mynd af henni í blöðunum. Þessu, sem konurnar voru svo argar yfir, var komið fyrir. Kon- urnar höfðu sig lítt í frammi meðan á verkinu stóð, en það voru nokkrir dagar. Það var byggt við stafninn á húsi þeirra Idu og Súsie. Það varð að taka nokkuð af grasflötinni, því að það þurfti að koma fyrir rörum og Idu til mikillar skelfingar var eitt blómabeðið hennar eyði- lagt. Það var líka Ida sem rauf hina kuldalegu þögn kvennanna og hrópaði æst til verkamann- anna: „Það er hægt að teyma uxann niður að vatninu, en ekki til að drekka það.“ Konurnar sátu og sleiktu sól- skinið á svölunum eða á gras- blettunum og litu hver á aðra. Sumar sýsluðu við blómabeðin sín. Sara, sem gat gengið upp stiga án þess að svima, var að skera rós sem vafði sig upp yfir hús Nancyar með feiknin öll af rauðum blómstrum. Einasti há- vaði á þessum kyrrláta eftir- miðdegi var skarkali frá verka- mönnunum. Þögnin var skyndilega rofin af Hope-Cary, sem opnaði hliðið og strunsaði upp garðstíginn. Hún var hávaxin, vel búin, með áberandi litum og fjörleg, enda þótt hún væri komin yfir sex- tugt. Hún var gift bygginga- meistara inni í bænum en átti ekki börn. Engin kvennanna stóð á fætur til að heilsa henni, þótt frúin lyfti hendinni í 57

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.