Bergmál - 01.12.1955, Side 64
B E R G M Á L
Desember
til ánægju við að sjá að frú
Hope-Cary roðnaði af gremju.
Sara gaf þeim góðan tíma til að
svara en hélt síðan áfram og
beindi orðum sínum til prests-
ins:
„Þannig er málinu háttað, hr.
prestur, að við konurnar erum
aliar gamlar, eins og nresturinn
veit ov höfum okkar gömlu venj-
ur. Við höfum aldrei lent í bví
að burfa að nota svona tæki.
Við erum allar ánæeðar með
gamla staðinn og viljum helzt
halda áfram að nota hann ef
presturinn levfir," — hún renndi
ausmnum snöggt yfir nefndar-
meðlimina, — „og þér herrar
mínir og frúr. Okkur hæfa ekki
þessir nýtízku hlutir og konurn-
ar fenPu bara chock, þegar hinn
ágæti biór var tekinn af okkur
og við fengum þunnt ölgutl, sem
er vita bragðlaust, í staðinn og
þegar sunnudagsblaðið var líka
tekið af okkur í miðri neðan-
málssögunni sem frú Ida las
upnhátt fyrir okkur. Ég bið svo
afsökunar á tölu minni og vil
þakka margs konar notalegheit
sem við njótum á fátækrahæl-
inu.“
Það var auðséð að presturinn
skildi enn ekki til fulls ástandið.
Frú Hope-Cary hvessti augun
svo að sprungur komu í brún-
leitt andlitspúðrið. „Þetta er
hreinasta bull kona góð,“ sagði
hún reiðilega. Og hún bætti við:
„Það gamla verður rifið og
tekið burt.“
Sara endurtók með þrákelkni
svo að orðin stóðu bjargföst:
„Konurnar vilja ekki sitja yfir
vatni.“
Frú Flower sagði eitthvað um
nýtízku hreinlæti og á eftir
reyndu Cole ofursti og frú Gas-
coygne að koma vitinu fyrir
Söru. En ekkert stoðaði. Augu
Söru glömpuðu af þráu stolti
ellinnar. Hún endurtók hvað
eftir annað að konurnar hefðu
nú sínar skoðanir og lét á sér
siklja að það væri ónærgætni að
hrófla við þeim venjum, sem
þær hefðu tamið sér á langri
lífsbraut. Einhver hugrakkur
nefndarmeðlimur spurði hvað
konurnar mundi gera ef gamli
staðurinn yrði tekinn burt? Sara
svaraði með engu minna hug-
rekki að þá mundu konurnar
nota hrísgerðið milli landar-
eignanna. Þetta varð langur og
þreytandi fundur.
Klukkutíma eftir að Sara
gekk inn í salinn, gekk hún það-
an út aftur með tilfinningu um,
að hún hefði sigrað, enda þótt
nefndin gerði allt til að það vrði
ekki misskilið að hún var mjög
- 62 -