Goðasteinn - 01.09.2005, Page 136
Sveitarfélög 2004
Goðasteinn 2005
Asahreppur
íbúar Asahrepps voru 1. des. 2004 150 talsins og fjölgaði frá árinu 2003 um 6.
Aldursskipting var eftirfarandi: 0-6 ára 13, 7-19 ára 21, 20-66 ára 96 og 67 ára og eldri
20. Karlar voru 74 og konur 76.
Ibúaþróunin í Asahreppi er jákvæð miðað við mörg önnur strjálbýlissveitarfélög.
Framkvæmdir á vegum Ásahrepps
Framkvæmdir á vegum Ásahrepps síðustu þrjú árin hafa verið miklar og er þar helst
að nefna lagningu á heitu vatni um sveitarfélagið. Samningur var gerður milli Hitaveitu
Rangæinga og Ásahrepps um tengingu alls húsrýmis í Ásahreppi þann 6. mars 2002.
Strax í lok árs 2002 var hafist handa við að skipta út plastlögn milli Sumarliðabæjar og
Ásmundarstaða í stállögn, en hitaveitan var komin til Ásmundarstaða árið 2000. Þá var
lagður 1. áfangi um Bólstað, Sel, Hamrahverfi og til Kálfholtshverfis í lok árs 2002 og
tengd veitan fyrri hluta árs 2003. Árið 2003 var annar áfangi hitaveitu lagður frá
Ásmundarstöðum um Berustaði, Hellatún, Áshverfi, Framnes og Ásmúla. Hita var hleypt
á í lok árs. Frestað var að leggja veituna í Vetleifsholtshverfi til ársins 2004 og er verið að
tengja þar nú þegar þetta er ritað árið 2005. Þá var einnig lagt árið 2004 til Áshóls,
Hárlaugsstaða og Borgarholts sem nú hefur verið hleypt á heitu vatni. Lokaáfanginn
verður lagður á árinu 2005 sem kemur með Gíslholtsvatni um Gíslholt, Kamb,
Herriðarhól, Heiði, Krók og til Þjórsártúns. Þó hér séu taldir upp nokkrir bæir þá eru
margir fleiri tengdir en þetta er gert til að sína hvar helstu stofnlagnir liggja sem síðan er
lagt út frá. Mikil ánægja er hjá fbúum að fá heitt vatn til sín. Það má fullyrða að dreifing
á heitu vatni út til sveita hefur gríðarleg áhrif á uppbyggingu sveitanna og styrkir þéttingu
byggðar og jákvæða íbúaþróun. Ásahreppur hefur eins og samningur var gerður um greitt
allt efni til hitaveituframkvæmdanna, en Hitaveitan greiðir vinnuþáttinn. Ekki hefur verið
innheimt svokallað tengigjald af íbúum sem hafa fasta búsetu í hreppnum. Áahreppur
lengdi lagnaleið stofnpípu milli Ásmundarstaða og Berustaða svo Meiri-Tunguhverfið
gæti tengst hitaveitu sem það hefur þegar gert.
Þá er rétt að geta þess að þáttaskil urðu við að uppfylla samninginn milli Hitaveitu
Rangæinga og Áahrepps þegar Orkuveita Reykjavíkur keypti Hitaveitu Rangæinga um
áramótin 2004-2005 af sveitarfélögunum. Orkuveitan mun bora nýja virkjunarholu í
Kaldárholti til að afla meira vatns. Þá telur Orkuveitan góð sóknarfæri í samningnum
milli Hitaveitu Rangæinga og Ásahrepps sem hún yfirtók við kaupin.
Samningur Ásahrepps við eMax um uppbyggingu örbylgjusambands í Ása-
hreppi
Markmið með uppbyggingu slíks kerfis er að ná til sem flestra íbúa og sumar-
húsaeigenda. Breiðbandið mun nýtast sem burðarlag fyrir Internet, útvarps- og sjón-
varpssendingar á netinu, eftirlitskerfi og fleira. Þetta mun án nokkurs vafa hafa mjög
jákvæð áhrif á þróun Internetvæðingar í dreifbýlinu og fyrir sumarhús á svæðinu auk
þess sem lífsgæði/tækifæri íbúa svæðisins munu aukast. Viðskiptavinir eiga að geta
tengst útsendingarstað í að minnsta kosti 20 km fjarlægð svo fremi að það sé sjónlína í
-134-