Goðasteinn - 01.09.2005, Síða 152

Goðasteinn - 01.09.2005, Síða 152
Látnir 2004 Goðasteinn 2005 Guðfinna Helgadóttir frá Ey Guðfinna Helgadóttir fæddist 15. júní 1922 í Ey í Vestur-Landeyjum. Foreldrar hennar voru hjónin Helgi Pálsson bóndi í Ey og Margrét Arnadóttir húsfreyja. Hún lést 24. apríl 2004 á Sjúkrastofnun Suðurlands á Selfossi. Útförin fór fram 1. maí 2004 frá Breiðabólstað. Helgi og Margrét í Ey eignuðust 5 böm og var Guð- finna í miðið en hin eru þessi í aldursröð: Kristín búsett á Selfossi, sambýlismaður hennar var Einar Sigurjónsson sem nú er látinn. Næst er Ásta búsett í Hvítanesi, gift Jóni M. Jónssyni bónda, Amheiður búsett á Selfossi, sambýlis- maður hennar er Böðvar Stefánsson og yngstur er Helgi, einnig búsettur á Selfossi, kvæntur Maríu Friðþjófsdóttur. Guðfinna átti ljúf uppvaxtarár með foreldrum sínum og systkinum í Ey, enda bar mildi hennar og staðfesta góðu og grandvöru uppeldi fagurt vitni. Ekki þarf þó nokkrum að blandast hugur um að á sveitabýli þess tíma hafa börnin þurft að taka til hendinni á ungum aldri. Eftir að Guðfinna hafði notið barnuppfræðslu síns tíma sótti hugurinn út fyrir túnjaðarinn heima í Ey. Fljótlega eftir fermingu réðst hún í vist hingað á Breiðabólstað til frú Þórhildar og sr. Sveinbjarnar. Þaðan lá leið hennar í vist til Bjöms Fr. Bjömssonar sýslumanns á Hvolsvelli og Margrétar konu hans. Því næst tók hún stóra skrefið og flutti sig um set til höfuðstaðarins til starfa hjá Jens Jóhannssyni lækni sem bjó við Tjarnargötuna. Og það var einmitt á Reykjavíkur- árunum, kannski fyrir sunnan Frflcirkjuna, sem hún hitti þennan unga vörpulega mann úr Austur-Landeyjum sem hún gat svo vel hugsað sér að vaka lengur með. Það var svo 20. ágúst árið 1949 að Guðfinna giftist Karli Hafsteini Halldórs- syni hér í kirkjunni á Breiðabólstað. Hann fæddist 4. febrúar 1925 að Arnarhóli í Vestur-Landeyjum, sonur hjónanna Guðbjargar Guðmundsdóttur húsfreyju og Halldórs Jóhannssonar bónda á Syðri-Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum. Karl og Guðfinna tóku við búsforráðum í Ey árið 1949, þar sem þeirra biðu mörg verk og vandasöm. Má þar nefna ræktun og framræslu jarðarinnar ásamt uppbyggingu íbúðar- og útihúsa. Segja má að þau hafi hafið búskap í upphafi þess tíma sem véltæki og tól komust í almenna eigu bænda hér á landi. Þá var öldin önnur í landbúnaði. Menn kepptust við að hafa búin sem stærst og afköstin sem mest. Það var á þeim árum sem menn máttu vera duglegir, forsjálir og afkasta- miklir. Eðli máls samkvæmt bretti ungt og dugandi fólk í bændastétt upp ermar og hófst handa við stækkun og eflingu búa sinna með auknum og bættum tækjakosti. Þar létu ungu Eyjarhjónin ekki sitt eftir liggja, drifu búið upp til þátímalegs horfs og búnaðist vel alla tíð. -150-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.