Goðasteinn - 01.09.2005, Qupperneq 189
Goðasteinn 2005
Látnir 2004
hans var tígulleg, hann var hár og grannur, dökkur yfirlitum, andlitið skarpt,
góðlegt og gáfur og greind í góðu lagi. Hann var einn þessara manna sem skipti
ekki skapi, gladdist yfir lífinu og tilbrigðum þess fremur en að láta mótlæti og
nokkurt andstreymi angra sig. Hann var trygglyndur, réttsýnn, umburðarlyndur og
heiðarlegur.
Þorsteinn var beinskeyttur, einbeittur en æðrulaus maður, hógvær og andsnúin
allri sýndarmennsku. Hann var fordómalaus um menn og málefni, tók því sem að
höndum bar óttalaus og opnum huga, hann var heill í starfi og samstarfi.
Sr. Onundur Björnsson
Þórir Guðmundsson frá Sámsstöðum
Þórir Guðmundsson fæddist í Ámundakoti í Fljótshlíð
1. október 1936. Hann lést 21. júlí 2004 á heimili sínu að
Mímisvegi 6 í Reykjavík. Útförin fór fram frá Breiða-
bólstaðarkirkju 5. ágúst 2004.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson frá
Múlakoti, bóndi í Ámundakoti og Múlakoti í Fljótshlíð,
f. árið 1900, d. 1972 og Guðrún Halldóra Nikulásdóttir
frá Kirkjulæk í Fljótshlíð húsfreyja, f. 1901, d. 1981.
Systkini Þóris eru Nikulás, f. 1929, búsettur á Hvols-
velli, kvæntur Sigrúnu Jóhannsdóttur, Árni f. 1932,
bóndi í Múlakoti í Fljótshlíð, og Ingibjörg f. 1941, búsett á Selfossi, gift Sigurði
Símoni Sigurðssyni. Fóstursystkini frá Sámsstöðum eru Edda Klemensdóttir f.
1943, búsett í Reykjavík og Trausti Klemenzson f. 1954, einnig búsettur í
Reykjavík
Svo háttaði til að við fæðingu Þóris veiktist Guðrún Halldóra móðir hans hast-
arlega og var vart hugað líf. I kjölfar þess fór hún ásamt nýfæddum syni sínum til
umönnunar til Ragnheiðar systur sinnar á Sámsstöðum og manns hennar
Klemenzar Kristjánssonar tilraunastjóra þar. Þegar Halldóra hafði náð sér nokkuð
af veikindum sínum hvarf hún aftur til síns heima en bauðst að skilja Þóri
tímabundið eftir hjá systur sinni og mági á Sámsstöðum meðan hún jafnaði sig
betur af veikindum sínum. Um það leyti sem Þórir var eins árs gamall hugðust
þau hjón, Guðmundur og Halldóra, sækja drenginn sinn litla en úr varð að dreng-
urinn ílengdist á Sámsstöðum en Sámsstaðahjónin voru barnlaus.
Þórir ólst síðan upp á Sámsstöðum hjá fósturforeldrum sínum við ástríki og
góðan beina ef mið má taka af hlýjum minningum hans sjálfs frá æsku- og upp-
vaxtarárunum þar á bæ. Við vini og félaga lét hann ætíð hlý orð falla um þau
Ragnheiði og Klemenz og minntist áranna sinna á Sámsstöðum og atlætis alls af
viðkvæmni og með söknuði.
-187-