Bókatíðindi - 01.11.2024, Page 3
Kæri bókaunnandi
E nn eitt árið er skammdegisljósið ljúfa mætt, brakandi fersk
Bókatíðindi, sem innihalda margskonar andans upplyftingu til
að létta lund okkar allra á þessum kalda og myrka árstíma sem
nú fer í hönd. Það kemur fátt í staðinn fyrir það að njóta nýrra bóka hvort
sem það er vetur, sumar, vor eða haust.
Það kom okkur hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda ánægjulega á óvart
þegar við fórum að skoða útgáfu ársins á miðju yfirstandandi ári að
fjöldi nýrra titla væri þá þegar orðinn rúmlega 200. Það gefur skýrar
vísbendingar um að bókaútgáfa hérlendis er ekki eingöngu bundin
við hið árlega jólabókaflóð sem er afar ánægjuleg staðreynd. Þannig
að hvort sem þú ert í flugvél á leið til útlanda, situr í bíl sem flytur þig
á milli landshluta, yljar þér við arineld í sumarbústað eftir snjómokstur,
ert á morgungöngu með hundinn, að brjóta saman þvott, situr sötrandi
sangríu á suðrænni sólarströnd eða ert bara heima í uppáhaldsstólnum
þínum eftir annasaman vinnudag þá er hér að finna úrval bóka sem eru
viðeigandi við hvert tækifæri. Þau fjölbreyttu útgáfuform bóka sem eru
í boði, þ.e.a.s. rafbækur, vefbækur og hljóðbækur auk hinnar klassísku
prentuðu bókar, styðja þig svo enn frekar við að efla í þér bókelskuna.
Bókatíðindin geyma samantekt yfir bókaútgáfu ársins 2024 sem er,
líkt og undanfarin ár, afar gróskumikil, fjölbreytt og metnaðarfull. Öll
útgáfa ársins 2024, þar á meðal þær bækur sem ekki náðust í tíma til
skráningar í prentútgáfu Bókatíðinda, er á hinum ágæta bókavef okkar
bokatidindi.is. Einnig viljum við vekja athygli á því að allar eldri útgáfur
Bókatíðinda, allt aftur til ársins 1890, eru nú aðgengilegar á timarit.is.
Með ósk um að þú og þitt fólk njótið góðra stunda með nýjum bókum
á komandi vikum og mánuðum.
Gleðileg íslensk bókajól!
Heiðar Ingi Svansson,
formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.
Undir kápumyndum allra bóka
má nú finna tákn sem vísa til
útgáfuforms. Táknskýringar
má finna neðst á öllum
kynningarblaðsíðum.
GOR Gormabók
HSP
Harðspjalda bók – allar
blaðsíður úr hörðum pappír
HLB Hljóðbók
IB
Innbundin bók – kápuspjöld
úr hörðum pappír
KIL Kilja
RAF Rafbók
SVK
Sveigjanleg kápa – líkt og
kilja en í annarri stærð
Merking tákna
í Bókatíðindum
BÓKATÍÐINDI 2024
Útgef andi: Félag íslenskra bóka út gef enda
Bar óns stíg 5
101 Reykja vík
Netfang: fibut@fibut.is
Vef ur: www.bokatidindi.is
Hönn un kápu: Halldór Baldursson og Ámundi Sigurðsson
Ábm.: Bryndís Loftsdóttir
Upp lag: 42.000
Prentvinnsla: Prentmet Oddi ehf., umhverfisvottað fyrirtæki
ISSN 1028-6748
Efnisyfirlit
Barna- og ungmennabækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4
Myndríkar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4
Skáldverk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Unglingabækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Teiknimyndasögur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
Skáld verk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
Íslensk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
Þýdd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 33
Myndasögur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 41
Náttúra, dýralíf og landshættir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 41
Ljóð og leikhandrit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 42
Listir og ljósmyndir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 47
Ævi sög ur og end ur minn ing ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 48
Fræðirit, frásagnir og handbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 52
Sagnfræði, trúarbrögð og ættvísi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 62
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn . . . . . . . . . . . . . . . . 64
Hannyrðir og matreiðsla . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 65
Íþróttir og útivist . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 66
Titl askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 68
Útgef end askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 72
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 3GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Slökun.
Lestur veitir hvíld frá
raunveruleikanum, dregur úr
streitu og hefur róandi áhrif.